Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1972, Síða 46

Freyr - 01.10.1972, Síða 46
M°L AR Kýrin sem gefur af sér 4000 kg af 4% feitri mjólk um árið, og vegur um 400—450 kg lifandi þunga, þarf fóður sem nemur á ári: 1.600 F.E. til framleiðsl- unnar og um 12—1300 F.E. til viðhaMs og fóstur- myndunar, og segjum svo að hún eyði 100 fóður- einingum tl þess að rása og ráfa um graslendin að sumrinu. Samanlagt fóður heimar verður þá 3000 F.E. Af þessu má gera ráð fyrir að fjórði partur sé kraftfóður, eða 750 F.E. Þá eru 75% af því hey og gras, nokkuð, sem ekki verður notað til mann- eldis. IVSASSEY FERGUSON - Massey Ferguson er fyrir löngu orðin ímynd hinnar sígildu dráttarvélar meðal þeirra sem til þekkja, hér á landi sem erlendis. Nú er liðið á þriðja áratug síðan MF vél- arnar náðu því að verða vinsælustu dráttar- vélar á íslandi. Þær vinsældir hafa þó aldrei grundvailast á því að MF vélar væru þær ódýrustu sem fáanlegar væru á markaðnum. Orsökin er einfaldlega sú, að viðskiptavin- irnir álíta beztu kaupin vera í Massey Fergu- son, þótt ódýrari vélar bjóðist. Aðrar tegundir hafa komið fram og horfið af markaðnum, enn aðrar selst að takmörkuðu leyti og með því að bjóða lægsta verð má ná sölu, a. m.k. í nokkur ár. Vörugæði reynast þó alltaf tryggust til vinsælda þegar til lengdar lætur. Það er engin tilviljun, að fieiri MF vélar eru í notkun en af nokkurri annari gerð. íslenzkir bændur vita vel, hvaða dráttarvél þeir mega bezt treysta. Massey Ferguson dráttarvél verður heldur ekki úrelt. Þær eldri eru enn í fullu gildi, hafi viðhaldsins verið gætt. Tæknileg full- komnun MF vélanna var slík þegar í upp- hafi, að þær reynast sígildar í notkun. Hönnuðir Iandbúnaðartækja um allan heim hljóta ætíð að miða við það, að tækin henti til notkunar með Massey Ferguson vélum. Þær eru einfaldlega það margar og það víða í heiminum að annað væri ekkert vit. Það er ein trygging sem eigandi MF vélar fær við kaup hennar. En kaupunum fylgja margir aðrir kostir. Perkins dieselvélin er einn kosturinn. Orku hennar og gangöryggi þekkja bændur. Lipurð í akstri og Iétt bygging dráttar- vélarinnar eru líka kostir sem koma sér vel. Vökvastýribúnaður MF vélanna kemur í veg fyrir óþarfa þreytu. Jafnvei þótt unnið sé hin sígilda dráttapvél heilan dag í samantekt á heyi og dráttar- vélin sé á sífelldum þeytingi til og frá um völlinn, þarf ekillinn ekki að kvíða strengjum næsta morgun. Þótt ótrúlegt sé, er hægt að snúa stýri frá borði í borð með einum fingri, á vélinni kyrrstæðri, sé hún búin vökvastýri. Aflminna fólk nær einnig betra valdi á vél- inni og af því leiðir meira öryggi í akstrin- um. Vökvastýri má þess vegna heita sjálf- sagður búnaður, a. m. k. vilja þeir ekki án hans vera sem kynnst hafa. Létt bygging MF vélanna er ekki sízti kostur þeirra, því mikils vert er að jarðvegur þjappist sem minnst, þar sem um er farið. Dráttarhæfni vélanna skerðist hins vegar ekki. Nauðsynleg þyngd til dráttar fæst ein- faldlega með tilflutningi á þunga hlassins yfir þrítengibeizli vélarinnar eða dráttarkrók. Mikil þyngd dráttarvélarinnar sjálfrar er því ókostur sem hönnuðir Massey Ferguson hafa lagt áherzlu á að útiloka. Hið víðtæka þjónustukerfi MF á íslandi er einn kostur sem fylgir kaupum vélanna. Kaupfélögin um land allt veita eigendunum þjónustu og auka með því eignargildi MF vélanna. Allt þetta hefur stuðlað að því að Massey Ferguson dráttarvélin hefur áunnið sér sína heiðursnafnbót í hugum þeirra sem bezt þekkja hana: „Hin sígilda dráttarvél“. Vert er að veita því athygli, að þeir bændur, sem sækja ætla um lán til stofnlánadeildar- innar vegna dráttarvélakaupa á næsta ári verða að hafa komið umsókn sinni á framfæri nú fyrir áramót. Þeir sem þess óska, geta fengið aðstoð við frágang umsóknarinnar hjá aðalumboði Massey Ferguson vélanna á ís- landi, Dráttarvélum hf. að Suðurlandsbraut 32 í Reykjavík. Síminn er 86500. 420 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.