Freyr

Volume

Freyr - 15.07.1978, Page 14

Freyr - 15.07.1978, Page 14
gerði af þeim brennu ásamt heymoði, þá var allt komið í sama horf aftur eftir nokkra daga. „Hvenær heldurðu, að þú losir okkur við þessa fjárans bindivél?“ sagði hún einn daginn, þegar spotti festist á tölu á fjós- gallanum hennar, svo að hann rifnaði nær því í tvennt, áður en hún gat stöðvað sig á skriðinu. „Áreiðanlega aldrei,“ svaraði Grímsi, „þó ekki væri nema vegna allra spottanna, sem til falla hérna á bænum vegna hennar. Ég veit bara ekki, hvernig ég færi að, ef ekki væri allt þetta ágæta bindigarn, sem alltaf er við höndina, ef eitthvað þarf að festa.“ Þessi orð voru ekki sögð út í bláinn, því segja mátti, að bindigarn héldi búskapnum saman hjá Grímsa. Hvar og hvenær, sem eitthvað bilaði, greip hann ofan í vasa sinn eftir spotta og tuldraði þá gjarnan annað eftirlætisspakmæli sitt: „Það er sjaldan bagi að bandi.“ Síðan tjaslaði hann hin- um bilaða hlut saman með bindigarni. Sama hvað það var, hliðgrind, hrífuhaus eða einhver búvélin. Alltaf reyndi Grímsi að gera við hlutinn með bindigarninu. Annað mál var það, hvað þessar „viðgerð- ir“ lánuðust vel eða reyndust varanlegar. En Grímsi var alltaf jafn glaður og upp með sér, þegar hann leit sigri hrósandi á handaverk sitt, og hugsaði hlýlega til vél- arinnar, sem lagði til allt þetta blessaða efni. Svo skeði það, sem Valgerður tók mjög nærri sér og jók á biturleik hennar út í bindivélina. Einn vordaginn gekk hún fram á tvílembda á, sem hún sjálf taldist eiga, þar sem hún lá niðri í lækjargili með haus- inn undir sér og það niðri í sjálfum lækn- um. Auðvitað var ærin steindauð, en lömb- in norpuðu sársvöng á lækjarbakkanum. Þegar Valgerður fór að athuga betur þessa hryggðarmynd, sá hún fljótt hvers kyns var. Vesalings skepnan hafði flækt sig í bindigarni, sem dottið hafði af illa bundn- um bagga sumarið áður. Einhvern veginn hafði bandlykkja fest sig um horn ærinnar, síðan hafði hún smeygt afturfæti í hinn enda lykkjunnar og snúið upp á, uns bandið var harðundið um fótinn og höfuðið reyrt aftur með síðunni. Þannig hafði hún barist vonlausri baráttu, guð veit hvað lengi, þangað til bandið hafði skorist inn í bein fast ofan við klaufirnar. Að lokum hafði hún svo oltið ofan í lækinn, sem leysti hana fljótt og vel frá þrautum sínum. „Ætlarðu samt að hanga á fjárans bindi- vélinni?“ spurði hún bóndann með miklum þunga, þegar hún kom heim með móðurlaus lömbin, sitt undir hvorri hendi. „Já, svei mér þá,“ mælti Grímsi þrákelknislega, „ekki er það henni að kenna, þótt þessi heimska ær þín álpaðist á dauðmeinlausan bandspottann og hefði ekki vit á að losa sig frá honum. Nei, heldur vildi ég missa allar þessar rolluskjátur heldur en bindi- vélina. Þær gefa hvort eð er ekkert af sér þessar rollur. Þá eru nú kýrnar skárri, og ekki eru þær svo vitlausar að drepa sig svona að vita ástæðulausu.“ En þessi síðustu orð hefði hann ekki átt að segja, því þau komu honum í koll um haustið. Þá gerðist það, að Dimma, besta kýrin í fjósinu, veiktist hastarlega. Hún hætti að éta, lagðist fyrir, tók síðan að þembast upp og átti örðugt með andardrátt. Það stoðaði ekki, þótt dýralæknirinn kæmi til og reyndi allt, sem hann kunni, og hellti ofan í hana meðulum fyrir svimháar upp- hæðir. Hún bara vildi ekki lifa, og þegar sýnt var, að hverju fór, var hún skotin á básnum og eigandinn skar hana á háls með vasakutanum sínum. Síðan brá hann marg- földu bindigarni um afturfætur hennar, festi sterku reipi í þetta haft, tengdi hinn enda þess í dráttarvél, þá einu af þremur, sem í lagi var, og dró kúna út úr fjósinu. Dýralæknirinn vildi endilega fá að líta inn í kúna, áður en hún var dregin til hinstu hvílu sinnar í skurðenda neðan við túnið. Lengi vel fann hann ekkert, sem skýrt gæti þessi hastarlegu veikindi kýr- innar. Hann fikaði sig með hníf sinn niður eftir meltingarfærunum, því að þar fannst 472 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.