Freyr

Volume

Freyr - 15.07.1978, Page 16

Freyr - 15.07.1978, Page 16
enginn Grímsi. Hún fór aftur fram í fjósið og fram eftir fóðurganginum. Þá sá hún bóhdanefnuna. Þarna kraup hann á einum af sínum heittelskuðu heyböggum og — eða hvað? Valgerður hljóp nokkur síðustu skrefin til hans og þreif í öxl honum. Þá kom hreyfing á bónda, það fór þó aldrei svo. En þessi hreyfing var samt nokkuð óvenjuleg og kom líka öldungis flatt upp á hana. Grímsi sneri sér við um hálfhring, hægt og mjúklega, og leit framan í konu sína. Valgerður var að allra dómi kona kjark- mikil í besta lagi, það hafði hún oft sýnt og sannað. Nú brá henni þó, þessari sterku og æðrulausu manneskju. Andlitið, sem á hana horfði, var ekkert augnayndi á að líta. Ásgrímur Jónsson hafði aldrei verið talinn í hópi fríðleiksmanna, jafnvel ekki þegar hann var uppábiiinn í skyrtu og með gula hálsbindið, sem hann hafði svo mikið dá- læti á. Nú var hann bara í gömlu tóftar- peysunni sinni, sauðmórauðri á litinn — og hálsbindið, já, það var hálsbindið, sem Valgerður starði á með undrun og skelfingu í svip. Það var blátt á litinn, fagurblátt, og hékk ofan úr bitanum, sem þarna lá þvert yfir fóðurganginn. Neðri hluti lykkjunnar lá niður fyrir kverk Grímsa og upp með höfðinu aftan við eyrun. Spottinn sást ekki vel, hann var sokkinn djúpt upp undir hökuna og falinn í hnakkahári mannsins. Valgerður horfðist ekki lengi á við bónda sinn, enda var hann ekki kyrr sjálfur, held- ur snerist hann sitt á hvað, til hægri og vinstri, hægt og taktfast, eins og hann væri að hugsa um að setjast á heybaggann, en kæmi sér ekki til þess. Valgerði féllust ekki hendur, ekki lengi. Hún áttaði sig strax og skildi, hvað gerst hafði. Fyrir hugskotssjónir hennar flaug hin gamalkunna mynd af Grímsa, kjagandi fram fóðurganginn með bagga framan á maganum, teygjandi fram höfuðið á sinn sérkennilega hátt. Alltaf var hann að reka tærnar í eitthvað, sém hann hafði skilið eítir á ganginum, kústa, reku eða þá eina bandaviðjuna, sem dottið hafði úr glugga eða af nagla uppi á vegg. Allt varð honum að fótakefli. En ekkert fékkst Grímsi um það, alltaf var hann jafn hreykinn, þegar hann var kominn á leiðarenda og gat varpað frá sér bagganum, dregið upp hnífinn og sprett böndunum með fagmannlegri handsveiflu. Þetta flaug í huga Valgerðar, um leið og hún gekk aftur að hangandi manninum, einbeitt á svip, stjakaði bagganum frá og sparkaði frá sér kústskaftinu, sem í þetta sxipti hafði orðið bóndanum að falli. Síðan lagði hún hendur á líkið. Hún fann fljótt það, sem hún leitaði að. Hún stakk hendinni niður í buxnavasa mannsins, dró upp hnífkutann, opnaði hann með tönnun- um og mælti u.pphátt og allt að því sigri hrósandi, þótt hún væri alein í fjósinu og enginn til að hiýða á nema skilningsvana beljurnar: „Hníflaus er líflaus," sagði hún hárri röddu. „Já, hníflaus er svo sannarlega líflaus.“ Um leið bar hún eggjárnið að bláu, harðstrengdu bindigarninu, sem bóndi hennar og lífsförunautur hafði smeygt höfðinu í svo laglega í fallinu. Þráðurinn hrökk sundur með háum smelli, og konan mælti við sjálfa sig og kýrnar, um leið og máttlaus líkami mannsins féll saman að fótum hennar: „Það er sjaldan bagi að bandi, það er þó bæði víst og satt.“ Síðan snerist hún á hæli og gekk föstum skrefum heim til bæjar og hringdi í hrepp- stjórann og héraðslækninn. Nokkrum vikum síðar gat að líta eftir- farandi auglýsíngu í einu landsmálablað- inu: „Ekkju á góðri bújörð í ... .sýslu vantar einhleypan starískraft frá næstu áramót- um. Æskilegur aldur um 30 ár. Á sama stað er til sölu tveggja ára PLAGA-heybindivél. Fæst með góðum kjörum, ef tekin er fljótt og greidd út í hönd. Tíu rúllur af bindigarni fylgja.“ 474 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.