Freyr - 15.07.1978, Side 36
Frá ullarmatsformanni,
STEFÁNI AÐALSTEINSSYNI,
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Fundahöld um nýja ullarmatið
Dagana 9.—11. febrúar 1978 var haldinn í
Reykjavík fundur yfirullarmatsmanna.
Til fundar þessa boðaði ullarmatsformað-
ur, Stefán Aðalsteinsson, en hann er yfir-
maður ullarmatsins í landinu.
Til fundarins mættu allir yfirullarmats-
menn landsins. Þeir eru fjórir að tölu og
hafa eftirtalin starfssvæði:
3. Gunnlaugur Karlsson, Svalbarðseyri,
fyrir Norðurland, með starfssvæði frá
Hrútafjarðarbotni um Norðurland að
mörkum Norður-Múlasýslu.
4. Sigfús Þorsteinsson, Fossgerði, Eiða-
hreppi, fyrir Austurland, með starfssvæði
um Norður-Múlasýslu suður um land að
Skeiðarársandi.
1. Hermann Jóhannesson, Kleifum, Gils-
firði, fyrir Suður- og Vesturland, með
starfssvæði frá Skeiðarársandi vestur um
land að Gilsfjarðarbotni.
2. Júlíus Reynir ívarsson, Móbergi, Rauða-
sandi, fyrir Vestfirði, með starfssvæði
frá Gilsfjarðarbotni um Vestfirði að
Hrútafjarðarbotni.
Ný lög um ullarmat voru samþykkt á
Alþingi vorið 1976, reglugerð um ullarmat
var sett í desember 1976 og yfirullarmats-
menn ráðnir til starfa samkvæmt nýju lög-
unum frá 1. apríl 1977. Leiðbeiningar um
ullarframleiðslu og framkvæmd ullarmats
hafa verið birtar, bæði í Frey, 17. tbl. 1977,
og Handbók bænda 1978.
494
F R E Y R