Freyr

Årgang

Freyr - 15.07.1978, Side 39

Freyr - 15.07.1978, Side 39
yrkja þeir um 700 ha lands. Hver bóndi á sinn skika, um 1,5 ha, og hefur bréf upp á það. Vélar eru í sameign og saman eiga þeir að bæta efnahag sinn og félagsmál. En hermt er, að félagskennd sé ekki sterk hjá egypskum bændum. Þeir búa yfirleitt við mikla ómegð og vond húsa- kynni, og helmingur þorpa hefur ekkert rafmagn. Samvinnubúin hafa myndað með sér 73 sýslusambönd. Ríkið hefur hönd í bagga með þessu öllu. Margt rækta þeir. Á veturna rækta egypskir bændur hveiti, kartöflur, sykurreyr og alfaalfasmára. Á sumrin rækta þeir aðallega bómull. Þeir sá til hennar á vorin og uppskera í september —október. Egypsk bómull er talin úrvals- vara, vegna hinna löngu trefja sinna, en bómullarplantan þarf góðan jarðveg og mikla vökvun. Hrísgrjónarækt er mikil og mest af uppskerunni er flutt út. Maís er ræktaður í bland við aðrar jurtir. Þeir rækta ógrynni grænmetis árið um kring, mest þó af lauk og tómötum og er því hælt fyrir gæði. Þeir rækta líka bauna- tegund eina, sem er undirstöðumatur egypsks sveitafólks. Víða eru stórar plant- ekrur með sítrusávöxtum, fíkjum og öðrum suðrænum aldinum. 120 km suðvestur af Kairó er El Fayum- vinin. Hún er tengd áveitukerfi Nílar með Bahr Jusuf (Jósefs-skurði). í þessari vel ræktuðu vin búa 4 milljónir manna. Þeir, sem reynt hafa, segja, að það sé alveg lyginni líkt að koma í þessa grænu og blómstrandi paradís eftir langa reisu um steindauða og steikjandi eyðimörkina. Það eru til fleiri svipaðar vinjar, og ráðgert er að rækta upp með vatnsveitum fleiri svæði í auðninni. Nóg er velgjan. Stíflugerðin mikla við Assuan í Suður- Egyptalandi er talinn eitt af undrum tækn- innar. Sá er tilgangurinn með henni að gjörnýta Nílarvatn til áveitu og nýræktar, en jafnframt að framleiða rafmagn í risaorku- verum. Fyrsta stíflan var gerð 1902 vlð neðsta rossinn í Níl. Nýjasía stíflan var reist 1960—70 með fjár- og tæknistuðningi Sovétríkjanna. Tröll- aukinn steinsteypuvarði, í lögun eins og lótusblóm, minnir á góða sambúð landanna á þeim tíma. Það er hin svonefnda Stóra stífla, sem stíflar Níl 60 metra yfir gömlu stíflunni þarna. Uppistaðan ofan við hana er orðin að 500 km löngu vatni, Nasser- vatni, sem nær suður í Súdan. Það er mesti vatnsgeymir í heimi. Þetta tilbúna stöðuvatn færði miklar lendur í kaf. Fræg hof, Abu Simbel, hefðu kaffærst, hefðu þau ekki verið söguð í sundur og flutt á hærri stað. Lognvær, blár vatnsflöturinn, gulur sand- urinn og sólin björt og heit valda annarleg- um hughrifum við þessar ævafornu menn- ingarminjar. Ásýndir guða og faróa úr steini stara út í bláinn frá tröllvöxnum líkneskjum. Leðjan. Þegar Níl streymdi frjáls og réði sér sjálf, flutti hún með sér ókjörin öll af frjósamri leðju, sem lagðist yfir akrana og myndaði óshólma Nílar. Leðjan kom aðallega frá Bláu Níl, sem rennur í Hvítu Níl við Kartún. Nú verður mest af leðjunni eftir í Nasser- vatni og það er tímaspursmál hve lengi vatnið verður að fyllast. Menn giska á 100 —500 ár. Áætlun mun vera til um að flytja leðjuna út í eyðimörkina og græða upp ný akurlendi. Nílaráveiturnar hafa veitt bænd- um í Neðra-Egyptalandi aðgang að vatni árið um kring. En hina frjósömu leðju vantar og nú verða þeir að kaupa tilbúinn áburð til þess að fá góða uppskeru. Jafnframt eru sníklar farnir að herja á akrana, sem ár- vatnið skolar nú ekki framar árlega. Það er enn ekki Ijóst, hver áhrif svona truflun á árþúsunda gamalt vistfræðikerfi hefur í framtíðinni. Aðalheimild: Grein eftir Willner Kjellberg í sænska blaðinu Land, nr. 18, 1978. F R E Y R 497

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.