Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.07.1978, Qupperneq 40

Freyr - 15.07.1978, Qupperneq 40
Mæðiveiki í Noregi iVlæðiveiki gerði, sem kunnugt er, mikinn usia í sauðfé íslendinga á sínum iíma. Ásgeir Einarsson, þá dýralæknir á Reyðarfirði, fann fyrstur þessa veiki hér á landi. í fyrstu var talað um hana sem einn sjúkdóm, en Guðmundur Gíslason benti á það fyrstur manna og leiddi rök að þvi, að um væri að ræða tvenns konar sjúkdóm: VOTAMÆÐi og ÞURRAMÆÐI. í tilraunastöð Háskólans að Keldum rannsökuðu íslenskir vísindamenn þessa sjúkdóma og reyndu að finna ráð við þeim. Sú reynsla og þekking, sem hefur fengist á þessum lungnasjúkdómum, hefur vakið athygli eriendra vísindamanna, og komið hefur í Ijós, að þessi veikindi eru tií í ýmsum löndum Evrópu og reyndar víðs vegar út um heim, þótt hvergi hafi þau gert jafn mikinn skaða og hér. Erlendis er votamæði þekkt undir nafninu JAAGZIEKTE, en þurramæðin er kölluð MAEDI í fræðiritum. Er það eitt af örfáum, íslenskum orðum, sem tekin hafa verið upp í alþjóðlegt vísindamál. Ýmis önnur erlend heiti eru líka notuð um þessa eða áþekka veiki. Fyrir átta árum skaut mæðiveiki upp kollin- um í Norsgi. Hafði veikin borist þangað með sauðfé af Texelstofni, sem flutt var inn frá Danmörku á árunum 1962—1970. Mest af þessu fé höfðu bændur, búsettir austan fjalls, keypt, þ.e. í sveitirnar um- hverfis Osló. í ársbyrjun 1973 var mæði- veikiveiran greind á Dýralæknastofnuninni í Osló og var þá hafin skipuleg barátta gegn henni. Nokkuð hefur verið ritað um mæðiveikina í norsk búnaðarblöð. Það kann að vera fróðlegt fyrir okkur að kynnast því, hvernig Norðmenn hafa snúist við þess- um nýja sjúkdómi í sauðfé þeirra. Til þess að gefa hugmynd um það birtist hér út- dráttur úr grein í Norsk Landbruk, nr. 8, 1978. Hún er að stofni til erindi, sem Helge Udnes, dýralæknir, flutti á fræðslufundi um þetta mál. Síðan mæðiveiki í sauðfé var greind í norsku sauðfé 1978 og farið var að berjast gegn henni með opinberum aðgerðum, hafa verið tekin meir en 125.000 blóðsýni úr kindum. Síðustu tvö ár hefur hálf önnur milljón lungna verið rannsökuð í sambandi við kjötskoðun hins opinbera. Dýralækn- ingadeild landbúnaðarráðuneytisins í Nor- egi hefur gert víðtækar ráðstafanir til að kortleggja útbreiðslu veikinnar, og nú er unnt að draga margar ályktanir af því starfi. Mæðiveiki er greind með blóðrannsókn eða með lungnaskoðun á sláturhúsum. Ekki er unnt að greina hana vísindalega í lifandi fé. Af 800 þúsund lungum, sem rann- sökuð voru 1977, fundust 55 sýkt. Síðan í janúarbyrjun 1977 hafa ný mæðiveikitilfelli fundist á 16 bæjum, en sýkin hefur fundist á alls 144 fjárbúum í Noregi. Þar af hefur fé verið slátrað á 60 bæjum, en fé á 44 búum hefur verið lýst smitandi, og á þau bú eru ýmsar hömlur settar af yfirvöldum. Aðalsmitvaldur er talinn vera fé, sem keyþt var til lífs frá Danmörku eða frá sýktri hjörð. Þessu eru kennd um 83% smits, en hrúta- 498 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.