Freyr - 15.07.1978, Blaðsíða 43
Hagur bænda í Borgarfirði batnandi
gagnvart K.B.
Á aðalfundi Kaupfélags Borgfirðinga í maí
sl. kom fram, að Mjólkursamlagið í Borgar-
nesi tók á móti 10.5 millj. lítra mjólkur árið
1977 og var það 5.1% aukning frá því árið
áður. Fyrir mjólkurlítrann fengu bændur
greiddar 84.31 kr., sem er nokkuð yfir
grundvallarverð. 77 þúsund fjár var slátrað
hjá K.B., en það er 2 þúsund færra en árið
á undan. í skýrslu kaupfélagsstjórans. Ólafs
Sverrissonar, kom fram, að hagur bænda
gagnvart Kaupfélaginu hefði batnað á síð-
asta ári og mætti eflaust þakka það góðu
árferði.
•
Nýmjólkursala hjá M.S. minnkaði um 5.3%
á si. ári.
— Frá aðalfundi Mjólkursamsölunnar. —
Aðalfundur Mjólkursamsölunnar í Reykjavík
var haldinn 25. apríl. í starfsskýrslunni kom
fram að rekstur fyrirtækinsins hefði gengið
mjög vel. Bændum var greitt grundvallar-
verð, kr. 84.06, en það er 7 aurum hærra en
landsgrundvallarverð. Þá voru þeim borg-
aðir þeir 33 aurar, sem vantaði á grundvall-
arverðið fyrir mjólkurframleiðsluna árið
1976. Meðal brúttó útborgunarverð 1977
varð því 84.35 krónur á lítrann, en það var
72.8% af útsöluverði mjólkur. Mjólkurbú á
svæði Mjólkursamsölunnar tóku á móti 58.5
milljón lítrum mjólkur á sl. ári, en það er
6.3% aukning frá fyrra ári.
Mjólkurframleiðslan var mest í júlí í fyrra,
6.6 millj. lítrar, en minnst í febrúar, 3.2 millj.
lítrar. Það eru vandræði af þessari ójöfnu,
árstíðabundnu framleiðslu, og þess vegna
var ákveðið að auka verulega haustuppbót
á mjólkurverðið.
Nýmjólkursala minnkaði um 5.3 af hundr-
aði frá fyrra ári, seldir voru 32.6 millj. lítrar.
Sala á skyri og jógúrt minnkaði líka nokkuð,
en það vannst upþ með sölu á Ými, sem
byrjað var að selja á árinu. Sala á undan-
rennu jókst. Frá Norðurlandi voru keyptir
106 þúsund lítrar af rjóma. Alls voru seldar
mjólkurvörur fyrir rúma 4.5 milljarða króna.
Starfsmenn Mjólkursamsölunnar voru um
síðustu áramót 112 og hafði fækkað um 171
á árinu. Ástæðan er sú, að flestar mjólkur-
búðir samsölunnar voru seldar eins og
kunnugt er. Mjólkursamsalan á þó enn 6
mjólkurbúðir, en rekur sjálf ekki nema eina.
Frá því að mjólkursalan var gefin frjáls,
hefur útsölustöðum mjólkur fjölgað um 29,
af þeim eru 10 í Reykjavík.
Mjólkurframleiðendur voru um síðustu
áramót 1295 og hafði fækkað um 71 á árinu.
Fundurinn gerði ályktun um að stjórn
Mjólkursamsölunnar segi fyrirtækið úr
Vinnuveitendasambandinu og sæki um að-
ild að Vinnumálasambandi samvinnumanna
og hafi um það samráð við stjórn Mjólkur-
bús Flóamanna.
Tveir menn áttu að ganga úr stjórn að
þessu sinni, þeir Eggert Ólafsson á Þor-
valdseyri og Oddur Andrésson á Neðra
Hálsi, en þeir voru báðir endurkjörnir. Aðrir
í stjórn eru Ágúst Þorvaldsson á Brúna-
stöðum, Gunnar Guðbjartsson á Hjarðar-
felli og Vífill Búason í Ferstiklu. Stefán
Björnsson, forstjóri, mun láta af störfum um
næstu áramót fyrir aldurs sakir, en hann
hefur verið forstjóri Samsölunnar í 25 ár.
Eftirmaður hann hefur verið ráðinn Guð-
laugur Björgvinsson, viðskiptafræðingur, en
hann hefur undanfarin ár verið fram-
kvæmdastjóri M.S.
Heimild: UÞL.
F R E Y R
501