Freyr - 01.04.1979, Side 17
ÞÓR GUÐJÓNSSON:
Ástand og horfur í veiðimálum
Um þessar mundir er mikið rætt um framtíðarstefnu í landbúnaðarmálum.
Offramleiðsla er í hinum hefðbundnu búgreinum svo sem framleiðslu kinda-
kjöts, mjólkur og mjólkurafurða. Litið hefur verið til svokallaðra auka-
búgreina til þess að létta bændum róðurinn við að draga úr offramleiðslu
áðurnefndravara og rætt um að fara ívaxandi mæli inn áönnursvið með það
fyrir augum að skapa þeim bætta lífsafkomu og viðhalda sem best núverandi
byggðajafnvægi í landinu.
í þessari grein mun ég aðeins ræða um þær aukabúgreinar, sem varða lax-,
silungs- og álaveiði, fiskrækt og fiskeldi, en þessar greinar í heild sinni eru
kallaðar veiðimál, samkvæmt skilgreiningu laxveiðilaganna. Þá mun ég ræða
um stöðu veiðimála nú og um framtíðarhorfur þeirra.
I. Laxveiðimálin.
Laxinn er verðmætasti vatnafiskur okkar.
Hann elst upp í fersku vatni framan af, en
sækir mest af vexti sínum í hafið. Hér á landi
voru um 60 laxár fyrir um það bil aldar-
fjórðungi, en eru nú um 80. Á síðustu áratug-
um hefur verið unnið að fiskrækt í ánum með
ýmsu móti, m. a. með því að sleppa seiðum,
gera fiskvegi, lagfæra árfarvegi, skipuleggja
veiðina, koma á veiðieftirliti og fleira. Árang-
urinn af þessu starfi hefur m.a. komið fram í
því, að laxveiðin í landinu hefur rúmlega
fjórfaldast að tölunni til á síðasta aldar-
fjórðungi og margfaldast að verðmæti og
þjóðhagslegu gildi.
Um 70% af laxi hér á landi veiðast á stöng
og um 30% í net. Stangaveiðin hefur gefið af
sér mun meiri tekjur fyrir veiðieigendur en
netaveiðin, og auk þess hefur stangaveiðinni
fylgt starfsemi við árnar, sem veitt hefur at-
vinnu. Veiðimannahús hafa verið byggð við
flestar ár, og eru þau yfirleitt í eigu veiðifé-
laganna. Á undanförnum áratugum hefur {
sambandi við stangaveiði verið byggt upp
viðskiptakerfi, sem hefur reynst mikilvægt
með tilliti til dreifingar á stangaveiðileyfum.
Auk íslendinga veiðir hér á landi fjöldi er-
lendra veiðimanna. í nýlegri úttekt Lands-
sambands veiðifélaga er áætlað, að gjald-
FREYR
207
3*