Freyr - 01.04.1979, Blaðsíða 31
Minkur í boga
Fjölgun þessara vargfugla hefur í för með
sér margan vanda og mjög mikið beint fjár-
hagstjón. Eins og alkunnugt er hefur gengið
á ýmsu með að verja fiskhjalla fyrir ágangi
þessara fugla, einnig hvers konar varpstöðv-
ar, t. d. æðarvarp. Þeir hafa unnið tjón á lax-
og silungseldi og fiskigengd í veiðiám, valdið
skaða á sauðfé, og enn er ótalið, að margir
kvarta undan drápi þessara vargfugla á ung-
um mófugla- og andategunda. Mörgum, sem
fylgjast með fuglalífi, sárnar að sjá ungana
lenda í kjaftinum á varginum. Menn tala um,
að raddir vorsins séu að þagna.
Vargfugl hrafn og svart-
bakur, sem hefur verið
svæfður, við öskuhauga,
en þar eru honum tíðum
gerðar veislur stórar
FREYR
221