Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1979, Blaðsíða 40

Freyr - 01.04.1979, Blaðsíða 40
Búðardal, flutti á fundinum um stofnun og starfsemi mjólkursamlagsins í Búðardal, en samlagið tók til starfa 18. mars 1964. Svæði mjólkursamlagsins nær yfir norðanvert Snæfellsnes, Dalasýslu og að botni Þorska- fjarðar. Árið 1965 voru 264 mjólkur- framleiðendur á þessu svæði, en fyrir rúmu ári voru þeir samtals 132 og innvegin mjólk árið 1978 var 3.1 milljón lítra. Viðtal er í ritinu við Stefán Björnsson, fyrrv. forstjóra Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, en hann lét af því starfi um síðustu áramót eftir að hafa gegnt því í 25 ár. Þá er athyglisverð grein eftir Peter Holm- skov um nýjung í ostagerð. Margt annað efni er í ritinu, sem er mjög vandað að öllum frá- gangi. Höfundarnafn féll niður. Höfundarnafn með greininni Skýrslur nautgriparæktarfélag- anna 1978, sem birtist í 6. tbl. Freysféll niður, en greinarhöfundur er Jón Viðar Jón- mundsson. Er hann beðinn velvirðingar á þessum mistökum. Framieiðsla og sala á kjöti árið 1978. Heildarframleiðsla á kindakjöti árið 1978 var 15 378 lestir, en það var 10.1% meira en árið áður. Dilkakjöt var 7.6% meira, en kjöt af fullorðnu 30.8% meira. Áárinu varseld 8 141 lest af dilkakjöti, sem var 8.7% aukning frá árinu 1977, og aukning í sölu af kjöti af full- orðnu nam 11.3%. Fluttarvoru út4 040 lestir af dilkakjöti, sem var 14.5% minna en árið áður, og ekki nema 27 lestir af kjöti af full- orðnu, sem var 94% minna en árið 1977. Birgðir í upphafi þessa árs voru 10 041 lest af dilkakjöti, en það var 10.4% meira en í upphafi ársins 1978, en birgðir af kjöti af fullorðnu voru 1 352 lestir, sem var 18.3% meira en í upphafi ársins á undan. Nautakjötssala var um 23% minni á síð- astliðnu ári en á árinu 1977. Innvegið kjöt- magn í sláturhúsunum reyndist vera 1 996 lestir, sem var 19% aukning frá fyrra ári. Birgðir í upphafi þessa árs reyndust vera 758 lestir, en í upphafi ársins 1978 voru þær 420 lestir. Ekkert nautakjöt var flutt út á síð- astliðnu ári, en árið á undan voru fluttar út 74 lestir. Eigið þið eldri árganga af FREY, BÚNAÐARRITINU eða Handbók bænda, sem þið viljið farga? Búnaðarfélagið vantar töluvert af eldri árgöngum þessarra rita og biður þá, sem ekki kæra sig um að halda þessum ritum saman eða varðveita þau að láta vita hvað þeir væru til með að selja af þeim. Þeir, sem vildu sinna þessu eru beðnir að hafa samband við Georg Arnórsson bókavörð hjá Búnaðarfélagi íslands, Bænda- höllinni, síminn er 19200. Búnaðarfélag íslands. 230 FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.