Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1979, Blaðsíða 39

Freyr - 01.04.1979, Blaðsíða 39
Auknar leiöbeiningar um heyverk- um. Stjórn Búnaðarfélags íslands hefur sett á stofn sérstakan starfshóp, sem hefur það verkefni að einbeita sér að leiðbeiningum um heyverkun. í hópnum eru 4 af ráðuneytum Búnaðar- félagsins, en þeir eru Haraldur Árnason, vélaráðunautur, Magnús Sigsteinsson, bú- tækniráðunautur og jarðræktarráðunaut- arnir, Sigfús Ólafsson, og Óttar Geirsson ráðunautur, en hann er formaður hópsins. Starfshópurinn hefur náið samstarf við Bútæknideildina á Hvanneyri, stjórn búnað- arsambandanna og héraðsráðunauta út um land. Misjafnar tekjur bænda eftir búteg- undum Á undanförnum árum hafa orðið nokkrar sveiflur í tekjum eftir tegundum búa segir Ketill A. Hannesson í skýrlsu til Búnaðar- þings 1979. Árin 1969 til og með 1973 skiþa kúabúin efsta sæti, en árin 1974 og 1975 eru sauðfjárbúin efst. Árið 1976 eru svipaðar fjölskyldutekjur hjá þessum tveimur þúteg- undum, en árið 1977 koma sauðfjárbúin vís- ast út í fyrsta sinn eftir að búreikningarnir voru flokkaðir eftir þessum búgreinum. Eina aðalástæðuna fyrir þessum þreytingum telur Ketill vera sveiflur í afurðamagni eftir árskú og kind frá ári til árs. Meðalnyt hefur hækkað síðustu tvö ár, meðal annars vegna aukinnar kjarnfóðurgjafar, en afurðir eftir vetrarfóð- raða kind hafa aðeins minnkað. Kjarnfóður hækkaði einnig lítið í verði 1977, en það er langstærsti kostnaðarliður á kúabúnum. Nythæð kúa hefur aukist um 23 kg á ári síðastliðin 30 ár. Mikil aukning hefur orðið í starfsemi nautgriparæktarfélagannaásíðastliðnum 10 árum. Árið 1969 voru um 15 þúsund kýr á skýrslum, en á síðastliðnu ári voru þær rúm- lega 23 þúsund. Árið 1948 var meðalnyt full- mjólka kúa 3 085 kg með 3.75% feitri mjólk. Á síðastliðnu ári var meðalnytin 3 867 kg og fitan 4.14%. Það mun láta nærri, að 53.4% allra kúa og kvígna 11/2 árs og eldri séu á skýrslum nautgriparæktarfélaganna. Tímaritið Mjólkurmál. Nýlega kom út 1. tölublað ársins 1979 af tímaritinu Mjólkurmál, sem Mjólkur- tæknifélag (slands gefur út. Meðal efnis er ítarleg greinargerð frá haustfundi félagsins um niðurstööur umræðuhópa, sem fjölluðu um endurskoðun á reglugerð um mjólk og mjólkurvörur og reglugerð um gæðamat á smjöri og ostum. Þá er birt í ritinu erindi, sem Sigurður R. Friðjónsson, mjólkurbússtjóri í FREYR 229

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.