Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1979, Blaðsíða 37

Freyr - 01.04.1979, Blaðsíða 37
Erlendir þættir '0 HQimasmíðaður snjóblás- ari Þessi heimasmíðaði snjóblásari hefur gert mikla lukku í vetur í snjóþyngslunum í Lower Cabrach í Aberdeen-héraði í Skotlandi. í Farmer's Weekly segir, að James nokkur MacHardy og tengdasonur hans hafi smjðað blásarann. Hafi þetta verkfæri reynst mjög vel við að hreinsa heimreiðar og bæjarhlöð í þeirra sveit, sem er talin afar snjóþung í Skotlandi. Aðalhlutar snjóblásarans eru gamall gras- knosari, aflóga sniglar og þriggja blaða blásari. Þetta er ,,mixað“ við — gamalt korn- bindivélarhjól. Blásarinn er knúinn með afl- úttaki dráttarvélar, sem ekið er aftur á bak. Hann leysir af hólmi snjóplóg og er sagður taka honum fram. Blásarinn var tilbúinn um jólin í vetur, í tæka tíð fyrir vetrarhörkurnar í Skotlandi. Námsstyrkur Ríkisháskólinn í Norður Dakota hefur tilkynnt að námsstyrkur úr Minningarsjóði Victors Sturlaugssonar til náms í jarðræktarfræði að upphæð $ 300,00 sé laus til umsóknar. Allar nánari upplýsingar um styrkinn veitir dr. Einar I. Siggeirson, Stangarholti 30, Reykjavík, sími 22806. Efri myndin sýnir blásarann að verki. A þeirri neðri sést hvernig blásarinn sem er gerður úr gömlum véla- rhlutum er byggður aftan á dráttarvélina. FREYR 227

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.