Freyr - 01.04.1979, Qupperneq 21
Urriði og bleikjur úr
Elliðavatni. Mikið mætti
gera til að bæta nýtingu
silungsvatnanna.
Ljósm. Þór Guðjóns-
son.
net eða gildrur eða leigt út netaveiðina. Gera
má ráð fyrir, að þéttbýlisfólk hafi áhuga á að
stunda slíka veiði, t.d. í sumarleyfum sínum.
Sölumöguleikar og verðlag á silungi er
alvarlegt vandamál í sambandi við æskilega
nýtingu vatnasilunga. Markaður fyrir silung
er lítill og verðið tiltölulega lágt. Auka þarf
neyslu á silungi. Ef það á að takast, verður
nauðsynlegt að hafa skipulag á sölunni
þannig, að ákveðinn aðili, einn eða fleiri, taki
við silungi frá hinum dreifðu silungsvötnum
og komi honum í verslanir, sem svo hafi hann
á boðstólum. Ef vel á að takast til í þessum
efnum, verður nauðsynlegt að koma á sér-
stökum söluherferðum til þess að vekja at-
hygli á silungi sem Ijúffengum neyslufiski.
Álaveiðar.
Áll er einn af vatnafiskunum. Lífsvenjur hans
eru mjög óvenjulegar. Hann hrygnir suður í
Sargassóhafi, en seiðin ganga í ferskt vatn í
löndum beggja vegna Atlantshafsins, þar
sem þau alast upp og ganga síðan aftur í sjó
til að hrygna. Þannig veitum við fjölda ála
uppeidi í ám, stöðuvötnum, árósum og sjáv-
arlónum, aðallega á landinu sunnan- og
suðvestanverðu, en við veiðum lítið sem
ekkert af þessum uppalningum okkar. Áll er
herramannsmatur, einkum reyktur. Hann má
veiða í stöðuvötnum og sjávarlónum, meðan
á uppvexti hans stendur og á göngu hans til
sjávar síðsumars í helstu ám landsins að
sunnan og vestan. Veiðin fer fram í sérstök-
um gildrum, álagildrum. Verð á ál hefur verið
hátt á markaði. Ætla má, að veiðimenn fái
svipað verð fyrir ál og fæst fyrir lax.
II. Fiskrækt.
Fiskrækt er samkvæmt skilgreiningu lax- og
silungsveiðilaganna allt, sem miðar að því að
auka eða viðhalda veiði í ám og vötnum, svo
sem friðun fisks, umbætur á lífsskilyrðum
fisks, flutningurfisks í veiðivatn, auðveldun á
gönguleiðum fisks og eftirlit með veiði. Á
undanförnum árum hefur verið unnið ötul-
lega að fiskrækt hér á landi með góðum ár-
angri, hvað laxarækt snertir, eins og áður er
getið.
Fiskeldi.
í lax- og silungsveiðilögunum er orðið fisk-
eldi skilgreint sem geymsla, fæðsla og gæsla
alifisks. Til eldis má notaýmsarfisktegundir,
FREYR
211