Freyr - 01.04.1979, Side 29
Vargfugli fjölgar
Veiðiverðlaun of lág
Árið 1977 voru alls unnir á íslandi 1297 refir, þar af 536 íullorðin dýr og 761
yrðlingur. Af fullorðnu refunum voru 286 grendýr, en 250 refirvoru unnir utan
grenja. Alls var legið á 194 grenjum.
Frá þessu greinir m. a. í starfsskýrslu Sveins Einarssonar, veiðistjóra, til
Búnaðarþings 1979. Þetta refastríð kostaði ríkið rúmar 34.6 milljónir króna.
4144 minkar urðu að bíta í gras vegna hernaðar minkaveiðimanna, og varð sá
herkostnaður tæpar 17 milljónir króna. Skotinn var 3461 svartbakur, og er
það ekki ýkja há tala miðuð við mergð þessa vargfugls, enda eru skotlaunin
lág, 20 kr. á fugl, en það er ekki fyrir hálfu skoti.
Þegar skrá um grenjavinnslu 1977 er skoðuð, vekur það athygli, hve norður-
hluti íslands sker sig úr um fjölda unninna grenja. Á Vestfjarðarkjálkanum
norðanverðum og Norðurlandi öllu austur um og Austurlandi norðanverðu,
þ. e. Norður-Múlasýslu, voru 150 greni unnin og 742 dýr eða 77% unninna
grenja, en 57% unninna dýra á landinu.
Freyr átti stutt viðtal við Svein veiðistjóra um þessi mál og fleira.
Tafla um unna refi og minka árið 1977 sýnir
svipaðan fjölda unninna dýra og nokkur
undanfarin ár, sagði Sveinn.
Minkurinn.
Minkarnir eru nokkuð færri, eða um 600 dýr-
um færri en árið áður. Kemur það nok'kuð á
óvart, þar sem minkurinn er að breiðast út.
Kann að vera, að mörgum þyki veiðiverð-
launin nokkuð lág og það hafi dregið eitt-
hvað úr, að menn leggi sig fram við eyðing-
arstarfið. Verðlaun eru nú 1500 kr. fyrir
minkinn, en það eru orðið það dýrt að ferðast
og allur búnaður svo dýr, að menn hafa
greinilega dregið úr minkaveiðum. Einnig er
þess að geta, að alltaf eru nokkrar sveiflur í
villiminkastofninum og fjöldi dýra misjafn ár
frá ári. Hitt mun þó aðalorsökin, að veiðar
séu minna stundaðar.
Minkurinn heldur sig þar, sem lífsskilyrði
eru góð fyrir hann, þar sem mest er af smá-
fiski og fugli. Þangað sækir hann og þessir
staðir eru margsinnis leitaðir yfir árið.
FREYR
219