Freyr - 01.04.1979, Page 35
Frey hefur borist bókin Áburðarfræði eftir
Magnús Óskarsson og Matthías Eggertsson.
Útgefandi er Búnaðarfélag íslands 1978.
Mottó, eða einkunnarorð bókarinnar á tit-
ilblaði, er eftirfarandi vísa Lofts Guðmunds-
sonar:
Heimspekin hæst í dag
er heimska um sólarlag,
en sannleiki sólarlagsins
var svartasta lygi dagsins.
Vafalaust vilja höfundar með þessum hætti
vekja athygli á þeirri staðreynd, að þekking
manna á umhverfinu og náttúrunni er stöð-
ugum breytingum undirorpin. Sagan sýnir,
að það, sem er haft fyrir satt í dag, mun hugs-
anlega verða vegið og léttvægt fundið á
morgun. Jafnvel þótt heimsmynd Aristótel-
esar tæki litlum breytingum allt fram á 17.
öld, munu þó alltaf hafa verið til einstakir,
víðsýnir menn, einnig á svörtustu miðöldum,
sem ekki fóru troðnar slóðir í hugsunum og
ályktunum: „Hvatki es missagt es í fræðum
þessum, þá es skylt at hafa þat es sannara
reynist“ skrifaði Ari fróði Þorgilsson á tólftu
öld. Samtímamaður okkar, austurríski hugs-
uðurinn Karl Poþper, segir, að því aðeins sé
kenning vísindaleg, að hægt sé að hrekja
hana, og finnst þó ekki öllum það vitleg
kenning, þótt á 20. öld sé, en Hegel fullyrti
þó, að viskuuglan flygi fyrst á kvöldin. Og satt
að segja gladdist ég yfir að sjá vísuna þá arna
framan á Áburðarfræðinni.
Bókinni er skipt í sex kafla, sem nefnast:
1. Næring jurta,
2. Tilbúinn áburður,
3. Búfjáráburður og annar lífrænn áburð-
ur,
4. Áhrif áburðar á umhverfið og heilsu
manna og dýra.
5. Tilraunir og rannsóknir.
6. Áburðaráætlanir.
Aftast í bókinni er stuttur viðbætir um efna-
fræði þeim lesendum til hægðarauka, sem
ekki eru kunnugir táknmáli efnafræðinnar.
Þá eru ýmsar töflur, t. d. stuðlar til að um-
Hvernig á að
bera á?
Ný áburðarfræði komin út.
reikna sýringa og hrein frumefni, áburðars-
kammtar á matjurtir, áburðarskammtar við
gras- og grænfóðurrækt, áætlað efnamagn í
búfjáráburði við misgóða geymslu og
meðferð, áburður eftir grip á ári og efnam-
agn í áburðartegundum. Höfundarnir hafa
tekið upp í þessa bók atriði, sem hingað til
hefur verið fremur sjaldgæft í íslenskum
kennslubókum, en ryðursér nú sem beturfer
til rúms, en það er útdráttur efnis á sþássíu,
atriðs orðaskrá og ábendingar um viðbótar-
lesefni. Er þar eingöngu getið íslenskra
heimilda og nær listinn til ársloka 1977.
Aftan við hvern kafla eru spurningar til
upprifjunar.
Mér virðist, að bókin beri þess merki, að
þeir, sem skrifuðu hana, eru vanir kennarar,
sem kunna að leiða fram þekkingu á Ijósan
hátt og einfaldan og að leggja áherslu á
aðalatriði. Teiknaðar skýringarmyndir eru
með teksta.
Bókin er m. a. ætluð sem kennslubók í
bændaskólunum, en höfundar geta þess, að
tilgangurinn séeinnig að gefastærri lesenda-
hópi en búfræðinemum kost á að eignast
yfirlitsrit um undirstöðuatriði áburðarfræði.
Hafi höfundur þá einkunn í huga starfandi
bændur.
Þeim Magnúsi og Matthíasi hefur líka
orðið að ætlun sinni, því þeir hafa þarna
samið handhægt rit um áburð og notkun
hans, handbók, sem gagnlegt er fyrir bænd-
ur að eiga og nota. Bókin er vel út gefin og
vönduð að frágangi, bundin í brúnt skinnlíki
með gylltan kjöl. Hún kostar 3.500 krónur og
fæst hjá útgefanda, Búnaðarfélagi íslands.
J. J. D.
FREYR
225