Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 19

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 19
Á reynslutímanum brotnaði lega í vinkil- drifi. Aðrar bilanir urðu ekki. Engin var- tengsli eru í vélinni. Lýsing. Sláttutækið Vicon OM 165 er sláttuþyrla og heytætir, smíðað sem ein heild. Það tengist þrítengi dráttarvélar og er búið grófum og fínum tengiboltum. Helstu hlutar vélarinnar eru: beisli og burðararmur, aflfærslubún- aður, jarðlægur skífubakki með fjórum sláttuskífum og heytætirinn, beint ofan þeirra. Ofan og framan við skífubakkann er þverslá, er tengist í báða enda skífubakkans. Burðararmurinn, sem nær út fyrir hægri hlið dráttarvélar, tengist miðri þverslánni með snúningsbolta, er leyfir allt að 9,5° halla til beggja hliða. Sláttuskífurnar og heytætirinn fá afl frá aflúttaki dráttarvélar, sem flutt er með drifsköftum og vinkildrifum. Milli slátt- uskífanna er aflið flutt með tannhjólum í lok- uðu olíubaði, er grípa hvert í annað. Hverri sláttuskífu tilheyra þrjú slík tannhjól, alls eru því tólf í skífubakkanum. Sláttuskífurnar eru að lögun sem jafnhliða þríhyrningar. Á hverri þeirra eru þrír hnífar festir með skrúfbolta, sinn í hvert horn þríhyrningsins. Hnífarnir ná um 80 mm út fyrir skífubrún. Þeir hafa tvær biteggjar, sem báðar er hægt að nýta. Tvær gerðir af hnífum eru í vélinni, sín fyrir hvora snúningsátt. Heytætinum er komið fyrir beint yfir sláttuskífum. Hann er gerður af láréttum ás, er hvílir í legum í báðum endum. Tvær tindaraðireru áásnum, hvormeð 16tindum. í vinnu snýst ásinn mót ökustefnu og tekur grasið yfir sig, um leið og það er losað af rótinni. Sterk hlíf úr járni umlykur sláttu- og tætibúnaðinn að framan og ofan. Aftan á henni eru tveir stillanlegir vængir úr járni. Með mismunandi stöðu þeirra má stilla breidd grasmúgans, er kemur aftur úr vél- inni. Vartengsli í drifbúnaði er ekki fyrir hendi, né heldur búnaður, sem sleppir vél- inni aftur á við, rekist hún í fyrirstöðu. í flutningsstöðu er vélinni snúið aftur um 90°. Aftengja þarf annað drifskaftið áður en það er gert. Framleiðslunúmer ........... 16005—00101 Lengd/breidd í flutningsstöðu ............... 2550/1820 mm Vinnslubreidd ........................ 1590 mm Lengd/breidd/þykkt sláttuhnífa ................... 120/50/4 mm Þvermál hnífaferils ................... 500 mm Snúningshraði sláttuskífa (aflútt. 540 sn./mín.) ............. 2900 sn./mín. Ferilhraði sláttuhnífa (yst) .......... 75,9 m/sek. Heytætir, vinnslubreidd .............. 1590 mm Þvermál tindaferils ............... 4350 mm Snúningshraði (aflútt. 545 sn./mín.) . 702 sn./mín. Ferilhraði tinda ................... 16,0 m/s Fjöldi tinda ...................... 2x16 Lengd tinda ........................ 113 mm Fjöldi smurstúta ........................ 8 Þyngd ................................. 546 kg Úr niðurstöðum prófunar. Sláttuþyrlan Vicon OM 165 kom til prófunar um miðjan júní 1979. Við prófun það sumar var hún notuð um 80 klst. Sláttugæði. Sláttuþyrlan reyndist hæf til sláttar á öllum tún- og engjagróðri. Bælt og trénað gras sló hún án tafa. Sökum þess að skífubakkinn er allþykkur, varð að halla hon- um nokkuð fram á við til þess, að sláttunánd verði hæfileg. Afköst og aflnotkun. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar er allt að 159 sm, miðað við eðlilega sporvídd dráttarvélar (sjá aftar). Al- gengur hraði við slátt var 8—10 km/klst. Við góðaraðstæðurmáaka alltað 12—14 km án þess, að ofálag verði á heytæti. Meðalafköst reyndust um 1,1 ha/klst. Sláttuþyrlan með heytæti er aflfrek. Sam- kvæmt niðurstöðum erlendra prófunar- stöðva, fengnum við aðstæður áþekkar ís- lenskum, er aflþörfin eins og fram kemur í töflu II. FREYR 7 V

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.