Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 21

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 21
Ár1979 Prófun nr. 494 NIEMEYER SLÁTTUÞYRLA MEÐ HEYTÆTI Gerð: RO 166—K. Framleiðandi: H. Nie- meyer Sohne, Riesen- beck, V.-Þýskalandi. Innflytjandi: Hamar hf., Reykjavík. Yfirlit. Sláttuþyrlan Niemeyer RO 166—K meö heytæti var reynd af Bútæknideild Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1979 og notuð alls um 80 klst. Sláttur hennar reyndistgóðurog auðveltað stilla vélina fyrir mismunandi sláttufjarlægð. Breidd sláttu- skára er allt að 1,6 m. Algengur ökuhraði við slátt er 8—10 km/klst. og afköst um 1,1 ha/ klst. að meðaltali. Vélin er mjög þungbyggð (644 kg) og aflfrek, þannig að lágmarksstærð af traktor, sem beitt er fyrir hana, er 35—45 kW (48—61 hö). Með sláttuþyrluna í flutn- ingsstöðu lætur dráttarvélin illa að stjórn, nema hún sé þyngd niður að framan. Heytætirinn er sambyggður sláttuþyrlunni og er ætlað að örva þurrkunarhraða heysins. Hann lyftir heyinu úr skáranum, dreifir því nokkuð og er einnig ætlað að merja og særa grasið. Gerðar voru athuganir til að kanna áhrif heytætisins á þurrkunarhraðann. Til saman- burðar var slegið með venjulegri sláttuþyrlu og snúið með heyþyrlu strax að loknum slætti. Að meðaltali var þurrkunin örari, þeg- ar heytætirinn var notaður, en tölfræðilega er sá munur ekki marktækur. Lýsing. Sláttuþyrlan Niemeyer RO 166—K ertengd á þrítengi traktors. Hún er búin tveimur stærð- um af tengitöppum 22 og 28 mm. Tvær sláttuskífur eru festar neðan áytri burðararm vélarinnar. Hann er liðtengdur við beislis- búnað vélarinnar og snýr hornrétt út frá dráttarvélinni í vinnu. Afl erflutt frádráttarvél til sláttuskífa með drifskafti í vinkildrif og þaðan með öxlum í lokuðu húsi. Innan í því er tannhjóladrif í olíubaði og snýr það sláttu- skífunum. Undir hvorri sláttuskífu er diskur, FREYR 9

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.