Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 22

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 22
sem þær hvíla á í vinnu. Hæö sláttuskífa frá diskum er stillanleg frá um 20 til 80 mm. Efnisþykkt sláttuskífa er 4,5 mm og diska 5 mm. í hvorri sláttuskífu eru fjórir sláttuhnífar, sem ná 30 mm út fyrir skífubrún. Þeir eru festir neðan á skífuna með því, að þeim er krækt upp á sívalt hak á enda fjaðurstáls, sem spennt er niður með sérstöku verkfæri. Sláttuhnífarnir hafa bitegg á báðum hliðum. Hægt er að nýta þær báðar með því að víxla hnífunum milli skífa. í vinnu haldast hnífarnir útréttir vegna þyngdarkrafts, en leggjast undan, mæti þeir fastri mótstöðu. Réttur halli sláttuskífa fæst með stillingu yfirtengis. Vartengsli fyrir drifbúnað er innbyggt í drifskaft. Sérstakur öryggisbolti sleppir burðararmi vélarinnar aftur á við um 37°, ef hann mætir fastri fyrirstöðu. Aflsambandið rofnar ekki, þó að öryggislásinn opnist. Heytætirinn erfesturaftan ásláttuþyrlunaog fær afl frá sama öxli og knýr sláttuskífurnar. Aflið er fært með rúllukeðju í láréttan öxul (90 mm rör), sem er þvert á ökustefnu. Á öxulinn eru festir tindar, sem nema heyið upp úr skáranum og þeyta því upp og aftur fyrir vélina. Hliðarnar eru lokaðar með járn- hlífum, en í hlffinni að ofan er stillanlegt spjald, sem hefur áhrif á, hve mikilli mót- stöðu heyið verður fyrir á leið sinni gegnum. tætinn. Fjarlægð tinda frá jörðu stjórnast af lengdyfirtengis. Allurdrifbúnaðurvélarinnar er umluktur hlífum. Sláttuskífurnar og heytætir er einnig vel umluktur hlífum úr járni og plastdúk. Framleiðslunúmer ................... 14542 Lengd/breidd ( flutningsstöðu .............. 2850/1720 mm Lengd/breidd I vinnslustöðu ... 1680/1160 mm Vinnslubreidd ....................... 1600 mm Lengd/breidd/þykkt sláttuhnífa ................... 94/40/3 mm Þvermál hnifaferils (yst) ............ 834 mm Þvermál sláttuskífa/diska ........ 774/720 mm Snúningshraði sláttuskífa ........... 1800 sn./mín. Ferilhraði sláttuhnlfa (yst) .......... 78,6 m/sek. Heytætir, vinnslubreidd ............. 7750 mm Þvermál tindaferils .............. 5050 mm Snúningshraði ..................... 864 sn./mín. Ferilhraði tinda ................... 22,7 m/sek. Fjöldi tinda ...................... 2x24 stk. Lengd tinda ........................ 210 mm Fjöldi smurstúta ....................... 11 stk. Þyngd m. heytæti ...................... 644 kg Úr niðurstöðum prófunar. Sláttuþyrlan Niemeyer RO 166—K kom til prófunar um miðjan júlí 1979. Var hún notuð það sumar við breytilegar aðstæður alls um 80 klst. Sláttugæði. Sláttuþyrlan reyndist hæf til notkunar við þær aðstæður, sem hér eru al- gengastar, þ. e. slátt á tún- og engjagróðri, hávöxnum sem lágvöxnum. Bælt og úr sér sprottið gras sló vélin yfirleitt án tafa. Sláttufjarlægð er breytanleg innan víðra marka, því breyta má hæð sláttuskífa miðað við diska um 60 mm. Er það gert með skrúf- búnaði og tekur aðeins skamma stund. Afköst og aflnotkun. Vinnslubreidd sláttuþyrlunnar mældist allt að 160 sm. Al- gengur hraði við slátt var 8—10 km/klst., en við bestu aðstæðurmáakaalltað 12 km/klst. án þess, að sláttugæði rýrni úr hófi. Að meðaltali reyndust afköstin um 1,1 ha/klst. Sláttuþyrlan með heytæti er mjög aflfrek. Samkvæmt niðurstöðum frá erlendum próf- unarstöðvum, þar sem unnið er við svipaðar aðstæður og algengt er hér á landi, er afl- þörfin eins og fram kemur í töflu. Eins og fram kemur af töflunni er aflþörfin háð ökuhraðanum. Auk þess er hún eðlilega háð uppskerumagni og grasgerð. Fram- angreindar tölur miðast við aflþörf sláttu- þyrlunnar og heytætisins, en auk þess þarf afl til að knýja traktorinn og draga vélina. Þannig má ætla, að lágmarksstærð á traktor sé á bilinu 35—45 kW (48—61 hö). Heytætir. Þessum aukabúnaði á sláttu- þyrlunni er ætlað að flýta þurrkun heysins á velli. Heytætirinn lyftir heyinu úr skáranum og dreifir því nokkuð. Einnig er honum ætlað að merja og særa grasið til að örva uppguf- un. 10 FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.