Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 43

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 43
jöfnunarsjóð en það verð, sem ákveðið var í upphafi verðlagsársins. Nýr verðlagsgrundvöllur tók gildi 1. sep- tember sl., þótt verðhækkunum á búvörum hafi verið frestað fram yfir miðjan mánuðinn. I þeim grundvelli var gert ráð fyrir, að bænd- ur fengju kr. 1.609.65 fyrir hvert kg af fyrsta flokks dilkakjöti, hækkun var því tæp 49% á einu ári. Nú er eftir að sjá, hvert meðalverð ársins verður, og hvað taka verður mikið af bændum til að greiða með útflutningi. Reiknað meðal útborgunarverð til bænda fyrir síðasta verðlagsár verður kr. 1050.94 á hvert kg, en frá þessari upphæð dragast sjóðagjöld og flutningskostnaður að slátur- húsi. En ekki er vitað, hvort allir sláturleyfis- hafar geta greitt þetta verð til bænda. Tóbaksjurtin er auðug af eggjahvítu. Vísindamenn hafa nú fundið út, að tóbaks- plantan getur orðið mikilvæg til eggjahvítu- framleiðslu í framtíðinni, að því er segir í sænska tímaritinu ,,Land“. Vísindamenn frá Kaliforníuháskóla hafa uppgötvað, að sé tó- baksjurtin slegin áður en hún blómstrar, er ekkert nikótín í blöðunum, en plantan er þá auðug af nýtilegu próteini. Nikótín myndast í jurtarótunum og nær ekki til blaðanna fyrr en eftir sex vikna vaxt- artíma. Til þess að nýta eggjahvítuna verður því að slá jurtina fyrir þann tíma. Tóbaksjurtin getur gefið af sér 165 tonn af grænfóðri af hektara, og það svarar til milli 16,5 og 33 lesta af þurrefni. Talið er, að 15 tonn af þurrefni gefi 3 tonn af eggjahvítu, og að meira em helming af því megi nota til manneldis. Er þetta meira en fæst við lúser- nu- og sojabaunaræktun. Til viðbótar gefur svo tóbaksjurtin af sér aðrar afurðir, sem nota má til skepnufóðurs og eldsneytis, meðal annars. Núverandi nytsemi tóbaksjurtarinnar er umdeilt mál, en hver veit, kannske verður þessi jurt lofuð og prísuð í framtíðinni fyrir aðra eiginleika? Óhófleg áfengisneysla fer vaxandi í strjálbýli í Svíþjóð. Áfengisneysla er mest í stórborgunum, en margt bendir til þess, að ofdrykkja breiðist einnig út til minni staða úti á landi. Fjöldi þeirra, sem brúka áfengi í óhófi, nálgast milljón í Svíþjóð, segirsænska blaðið Land. í strjálbýlinu fylgir áfengisneyslunni sá aukaböggull, að menn hyllast til að aka drukknir. Oft er langt að fara heim af skemmtunum og menn hugsa sem svo, að varla sé líklegt, að þeir hitti lögreglubíl úti á sveitavegunum. Af þessu hafa orðið mörg slys. Blaðið getur líka um, að unglingar úr sveitum, sem hafi flust til bæja, eigi oft erfitt með að aðlagasig bæjarlífi. Mjög oft hafi þeir nevðst til að flytja úr sveitinni í atvinnuleit. Unglingarnir komi heim í sveitina um helgar, þegar þeir geta, og reyni jafnan að neyta færis að flytja aftur í sína heimasveit. Þegar þeir koma heim snögga ferð eða til lengri tíma, segir blaðið, hafa sumir þeirra heim með sér drykkjuvenjur, sem þeir hafa lært í leiðindum sínum og vanlíðan á öðrum stöðum. Breska Iandbúnaðarsýningin, „Royal Show“, Þrátt fyrir 200 ára iðnþróun í Bretlandi er landbúnaður ennþá stærsta framleiðsluat- vinnugreinin og framleiðir meiri mat en Ástralía og Nýja-Sjáland til samans, og eins mikið og Kanada. Þetta sýnir dugnað breskra bænda og það, hvað þeir hafa verið fljótir að taka upp nýja verktækni. Bændurnir njóta líka fulltingis fjölþættrar rannsókna- og tilraunastarfsemi. Stærsti búðargluggi fyrir breskan land- búnað erThe Royal International Agricultur- al Show (The Royal Show), sem haldin er á hverju ári í Stoneleigh í Warvíkurskíri á Eng- landi fyrstu vikuna í júlí. Á 250 ha lands má þar sjá þverskurð af hinu besta í breskum landbúnaði ásamt því nýjasta í bútækni frá meginlandi álfunnar. FREYR 31

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.