Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 23
Tafla.
ökuhraði km/klst
8
10
12
Aflþörf kW (hö) ...............
Aflþörf á metra vinnslubreiddar
20,1 (27,3) 22,8 (31,0) 25,4 (34,5)
12,9 (17,5) 14,6 (19,9) 16,3 (22,2)
Til að kanna þessi áhrif voru gerðar athug-
anir, þar sem bornir voru saman eftirfarandi
liðir:
A. Slegið með venjulegri sláttuþyrlu og fyrst
snúið með heyþyrlu næsta dag.
B. Slegið með venjulegri sláttuþyrlu og
snúið að loknum slætti með heyþyrlu og
aftur fjórum tímum seinna.
C. Slegið með Niemeyer RO 166—K og fyrst
snúið með heyþyrlu fimm tímum seinna.
Athugunin stóð í tvo góða þurrkdaga.
Hitastig var um 10°C og rakastig loftsins
55—60% og nokkur gola. Á meðfylgjandi
mynd má sjá niðurstöður athugunarinnar.
Niðurstöðurnar eru í stórum dráttum þær,
að raunhæfur munur er á milli A annars veg-
ar og B og C hins vegar. Þessi munur kemur
einkum fram fyrri daginn. Eins og kemur
fram á línuritinu er þurrkunin að meðaltali
örari á heyinu, sem slegið er með Niemeyer
RO 166—K, fyrri daginn. Þegar lagt er töl-
fræðilegt mat á þann mun, er hann ekki
marktækur í þessari athugun. Athugunin var
endurtekin á öðrum grastegundum, og voru
Ar1979
Kg vatn/kg þe.
(% þe.)
niðurstöðurnar í stórum dráttum þær sömu
og áður kom fram.
Þá má geta þess, að þurrefnistap heysins á
velli var ekki mælt í þessum athugunum, en
af erlendum tilraunum má marka, að það tap
er meira þar, sem heytætar eru notaðir.
Hvanneyri, október 1979.
Bútæknideild.
Prófun nr. 495
VICON SLÁTTUÞYRLA
Yfirlit.
Sláttuþyrlan Vicon CM 240 var reynd af Bú-
tæknideild Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins sumarið 1979 og notuð alls um 80
klst. Sláttur hennar reyndist viðunandi
góður. Við mælingar á sláttufjarlægð reynd-
ist stubblengdin vera á bilinu 2—5 sm í um
70% tilvika. Sláttufjarlægð er aðeins stillan-
FREYR
11