Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 44
Fyrsta sexiemban á íslandi.
Á sauðburöi vorið 1979 gerðist sá merki at-
burður, að ærin Stóra-Kolla, eign Sigfinns
Pálssonar, Stórulág í Nesjahreppi, A.-Skaft.,
bar sex lömbum. Þetta er í fyrsta skipti á
íslandi, sem vitað ér, að ær hafi átt sex lömb
án þess, að notaðir hafi verið hormónar.
Stóra-Kollaer heimaalin, fædd 1971 og því
8 vetra. Faðir hennar var Suðri, frá Ragnari
Sigfússyni, Skálafelli (Gamlagarði), móðir
Mórukolla. Mórukolla var frjósöm ær, mun
hafa átt 3 lömb tvisvar sinnum. Föðurætt
Stórukollu frá Ragnari í Gamlagarði í Suður-
sveit er eflaust af miklu frjósemiskyni, en þar
hafa 8—12% ánna iðulega verið þrí- og fjór-
lemd síðustu árin.
Stórakolla var tvílembd veturgömul, þríl-
embd tveggja og þriggja vetra, síðan fjór-
lembd 4—7 vetra og sexlembd sl. vor. Hún
hefur því alls átt 30 lömb á 8 árum, eða 3,75
lömb að jafnaði. Öll hafa lömbin lifað, nema
1, sem drapst á miðju sumri.
Lömbin sex, sem Stóra-Kolla átti sl. vor,
eru öll gimbrar og voru allarsettar á. Þær eru
undan Skíða frá Sauðanesi.
Þess má að lokum geta, að rúmlega 50 ær
Sigfinns áttu 3 lömb, og 4 ær fjögur lömb sl.
vor, af tæplega 350 ám, svo hér er um mjög
mikla eðlisfrjósemi að ræða.
Sveinn Hallgrímsson.
Stóra-Kolla nýborin og með sexlembingana að hausti.
G-vara
er mjólkurvara
sem geyma má
12 manuði
án kælingar.
Það kemur sér
víða vel.
32
FREYR