Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 27

Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 27
Ár1979 Prófun nr. 497 CONDOR BAGGAGREIP Gerö: Condor 600. Fram- leiðandi: Vandenende B. V. Borssele, Hollandi. Inn- flytjandl: Vélaborg hf., Reykjavík. Yfirlit. Condor baggagreipin var reynd af Bútækni- deild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins sumarið 1979. Alis voru hirtir með henni um 9000 baggar. Baggagreipin er tengd á ámoksturstæki dráttarvélar. Með henni er safnað saman böggum, sem liggja í röðum á velli, og þeim hlaðið ávagn eða í stæðu, alls sex í senn. Nokkur vandkvæði voru á því að safna böggum í tvö ytri hólf greiparinnar vegna lögunar meiðanna. Til þess að vinnu- afköst verði góð, þarf vökvakerfi dráttarvél- arinnar að vera í góðu lagi, og búið tveimur stjórnlokum. Ef unnið er í næturáfalli eða á rakri jörð, er ókostur að þurfa að ýta bögg- unum eftir sverðinum. Hægt er að nota baggagreipina til flutninga, og tekur hún þá 12 bagga í senn. Við góðar aðstæður má ®tla, að afköst við hleðslu bagga á vagn séu um 1,2—2,0 mannmín./hb. Baggagreipin reyndist í flestum atriðum sterkbyggð. Hlekkjakeðjur tvær, sem halda Qreipinni í láréttri stöðu, reyndust ekki nægilega sterkar og slitnuðu alloft. Lýsing. Condor baggagreipin er tengd á- moksturstækjum dráttarvélar. Hún er ætluð til þess að safna böggum á velli og stafla þeim á vagn eða í stæðu. Greindin er gerð úr 80x80 mm kantrörum. Aftast á henni eru tvö gúmmíhjól, er hún gengur á í vinnu. Þar eru einnig festingar fyrir ámoksturstæki. Tvær keðjur, ertengjastgrindinni og undirstöðum ámoksturstækisins, hafa það hlutverk að halda baggagreipinni í láréttri stöðu, hversu hátt sem lyft er. Á báðum hliðum grindarinn- ar eru griparmar eða meiðar. Þeir eru í tengslum við vökvatjakk, er getur fært þá sundur eða saman. Tveir aðrir meiðar eru undir miðri greipinni, festir á hjarir. Milli þessara fjögurra meiða myndast því þrjú hólf, misstór eftir stöðu vökvatjakksins. Böggum ersafnað í greipina með því, að ekið er langs eftir baggaröðinni. Þegar öll þrjú hólfin eru full, er vökvatjakkurinn dreginn saman, en við það þrengjast hólfin, og bagg- arnir klemmast fastir. Síðan er hlassið losað á vagn eða í stæðu. FREYR 15

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.