Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 41
Kankvísir á svip eru þeir
Sveinn Þórarinsson, Kols-
holti (t. v. nær) og Einar
Þorsteinsson, bóndi og
ráðunautur Sólheimahjá-
leigu (fjær)
sem hann ertalinn fullkomnasturí heiminum
nú.
Stjórn Mjólkurbús Flóamanna ákvað að
halda upp á afmæli búsins með því að bjóða
öllum mjólkurframleiðendum á Suðurlandi
að heimsækja búið. Það var skipulagt
þannig, að ákveðnum fjölda var boðið að
koma og skoða búið og þiggja góðgerðir.
Þessu var skipt á ákveðna daga fyrir ein-
stakar sveitir. Það mun hafa verið um 80% af
mjólkurframleiðendum á Suðurlandi, sem
heimsóttu búið síðastliðið sumar.
Lokahóf í tilefni afmælisins var haldið á
Selfossi miðvikudaginn 5. desember.
Myndir, þær, sem birtar eru hér í blaðinu,
voru teknar í hófinu af A. G.
Molar
A að skerða tekjur bænda?
Nokkrar umræður hafa átt sér stað undan-
farið um frestun á hækkun á búvöruverði,
sem á að taka gildi 1. desember. Það hefur
heyrst, að bændur ættu að fá hækkuð laun,
en aftur á móti ætti að fresta hækkunum,
sem stöfuðu af auknum rekstrarkostnaði
búanna. Þessar umræður spegla þá van-
þekkingu, sem margir virðast þjáðir af gagn-
vart eðli búrekstrar. Ef eingöngu ætti að
miða hækkun verðlagsgrundvallarins við
hækkun launa viðmiðunarstéttanna, en ekk-
ert tillit tekið til hækkaðs verðs á aðföngum
til búrekstrar, þáætti það að veraaugljóst, að
bændur gætu ekki náð sömu hækkun í
tekjum og aðrar stéttir. Laun bænda eru að-
eins það, sem eftir er, þegar allur tilkostn-
aður við búreksturinn hefur verið greiddur.
Fáist ekki viðurkenning á hækkunum út-
gjaldaliða verðlagsgrundvallarins, þá kemur
það einfaldlega fram í minni tekjum til fram-
leiðenda. Stjórn Stéttarsambands bænda
gerði þvíeftirfarandi bókun áfundi sínum 20.
nóvember sl. og sendi landbúnaðar-
ráðherra:
„Stjórn Stéttarsambands bænda sam-
þykkir á fundi 20. nóvember að mótmæla
skilningi Magnúsar H. Magnússonar,
félagsmálaráðherra, sem fram hefur komið í
blöðum á rétti ríkisstjórnarinnartil að ákveða
breytingu búvöruverðs 1. des. nk.
Stjórn Stéttarsambands bænda telur, að
FREYR
29