Freyr - 01.01.1980, Blaðsíða 38
Agnar Guðnason: I
Mjólkurbú Flóamanna 50 ára
Flóaáveitan var beinn undanfari Mjólkurbús
Flóamanna. Stofnun þess var undirbúin og
skipulögð af Flóaáveitufélaginu.
Áveituframkvæmdirnar hófust vorið 1922
og stóðu yfir í fimm ár. Á aðalfundi Flóaá-
veitufélagsins 6. febrúar 1925 var samþykkt
að kjósa fjögurra manna nefnd til að gera
tillögur um, hvernig áveitan gæti helst lyft
undir búskap í Flóanum og stuðlað að aukn-
um framförum. Á fyrsta fundi nefndarinnar,
hinn 19. júlí 1925, kemur orðið ,,mjólkurbú“
fyrst fyrir.
Nefndin setti sér eftirfarandi markmið að
vinna að:
Að ofan: Gamla mjólkurbúið. Það
var teiknað af Guðjóni Samúels-
syni, húsameistara og átti að
geta tekið á móti 3. millj. lítra.
Að neðan: Við háborðið, talið frá
vinstri: Hörður Sigurgrímsson
Holti, Sigurgrímur Jónsson Holti,
fyrrv. form MBF., Sváfnir
Sveinbjörnsson Breiðabólsstað,
Magús Sigurðss., Birtingaholti,
Grétar Símonarson, mjólkur-
bússtjóri og Eggert Ólafsson,
Þorvaldseyri, núv. formaður
sjórnar MBF.
Til hliðar: Við háborðið sat einnig
veislustjóri kvöldsins og
stjórnarmaður í stjórn MBF, Ágúst
Þorvaldsson á Brúnastöðum.
26
FREYR