Freyr - 15.02.1983, Side 13
Rekaviður á Ströndum.
Jón: Best væri að menn keyptu
rekastaura beint frá rekabændum
og spöruðu sér þannig milliliða-
kostnað.
Pétur: Ég vil hvetja bændur í
hverju sveitarfélagi til þess að
bindast samtökum um að sækja
einn eða fleiri bíla af staurum.
Menn hafa gert þetta, en mér
hefur skilist að skóinn kreppi helst
að þannig að menn hafi ekki
handbæra peninga. Þeir fá skrif-
aða staura í kaupfélaginu, en þeir
fá ekki peninga til þess að kaupa
ódýrari staura. Og kaupfélagið
hefur ekki áhuga á því að selja
ódýrari staura, það væri minni
hagnaður af því.
Jón: Þó kaupfélögin vildu nú ekk-
ert græða á þessu, þá þurfa þau
alltaf að bera nokkurn kostnað af
því og svo verða alltaf einhver
vanhöld á þessu.
Það mætti hugsa sér að búnaðar-
félögin söfnuðu pöntunum í girð-
ingarstaura og gerðu út bíl á fund
rekabænda?
Jón: Já, ég held að það væri
skynsamlegt, það mundi sameina
karlana um útvegun, því að þeir
þurfa alltaf að sækja þetta hvort
eð er í kaupfélagið og spottinn þar
á milli getur orðið nokkuð langur.
Sumir rekabændur hafa aðstöðu
til þess að flytja staura til
viðskiptavina.
Pétur: Ég hef stundum landað
einum og einum bílfarmi hér og
þar og fengið karlana á bæjun-
um til þess að selja fyrir mig. Og
þetta hefur gengið vel stundum,
en það er eins og enginn kaupi
girðingarstaura núna.
Hvers vegna ekki?
Pétur: Vegna þess að það er svo
mikill áróðurinn frá stjórnvöldum
og öðrum aðilum í þá veru að
vinna bænda sé ónýt og óþörf og
að þeir eigi bara að skera niður og
þá náttúrlega girða þeir ekki.
Eru til samtök rekabænda?
Jón: Nei, einu samtökin sem hægt
er að tala um eru þau tengsl sem
við höfum gegnum Árna hlunn-
indaráðunaut.
Pétur: Fram að þessu hefur það
viljað brenna við að við höfum
undirboðið hvern annan. Ég held
að gott væri að birta pistil í Frey
seinni part vetrar með vísbending-
um um verð á rekaviði.
Jón: Já, og enn sterkari leikur
væri að Framleiðsluráð birti
snemma á vorin verðskrá um
staura úr rekaviði, sem miða
mætti við. En í þessum pistli sem
Pétur var að tala um mætti koma
fram að þessir staurar (úr reka-
viði) eru yfirleitt betri heldur en
inntluttir staurar, því að þeir inn-
fluttu eru af ungviði í bókstaflegri
merkingu, með börk og eru hand-
ónýtir, en hinir eru þó saltir úr sjó
og sterkari viður.
Pétur: Þeir fúna líka síður.
FREYR — 133