Freyr - 15.02.1983, Blaðsíða 35
Magnús Finnbogason
Lágafelli
Kornrækt í Austur-Landeyjum 1982
Á síðasta vetri stofnuðu 13 bœndur í Austur-Landeyja-
hreppi kornrcektarfélagið Akra sf. sem er sameignarfélag
með ótakmarkaðri ábyrgð. Tilgangur félagsins er að
stuðla að kornrœkt í Austur-Landeyjum eins og segir í
lögum þess.
Kornskurður á Guðnastöðum í A.-Landeyjum haustið 1982 með nýrriskurðþreskivél t
eigu kornrœktarfélagsins Akra sf. (Ljósm. Ragnar Guðlaugsson).
Byggakrar voru hér á 10 bæjum í
sumar, 9 aðiljar sáðu hver heima
hjá sér en 4 voru saman um einn
akur. Stærð akranna var frá 2 ha
uppí 3 Vi ha hjá hverjum. Ræktað
var Mari-bygg á 31,3 ha. Upp-
skera varð alls 29.152 kg eða 9,31
tunna á ha að meðaltali
Félagið keypti 2 sláttuþreskivél-
ar af J. P. gerð frá Danmörku,
innflytjandi Glóbus hf. Vélar
þessar reyndust mjög vel og anna
mun stærri ökrum heldur en nú
eru ræktaðir á vegum félags-
manna.
Korninu ókum við blautu beint
úr ökrunum í Stórólfsvallabúið í
Hvolsvelli, þar sem það var þurrk-
að, malað og blandað saman við
græna hafra í helmingahlutföllum,
auk þess var blandað í það 6% af
fiskimjöli og 1% af steinefnum.
Kögglar þessir eru sambærilegir
að efnainnihaldi eins og B-kögglar
af venjulegum kúafóðurblöndum.
Verð á þurrkun og umbúðum var
okkur reiknað á kr. 0,55 á kg.
Hálminn gátu flestir nýtt. Var
hann þurrkaður og seldur til
sveppaframleiðslu að stærstum
hluta en einnig notaður til fóðurs.
Segja má að á meðan ekki fæst
meiri uppskera en þetta ríði nýting
á hálmi baggamunin í fjárhagslegri
afkomu þessarar búgreinar.
Um árangur sumarsins er það
að segja að uppskera er lítil. Er
þar fyrst og fremst um veðurfars-
áhrif að ræða, júní var bæði þurr
og kaldur og var þá algjör kyrr-
staða í spretti og sums staðar
þurrkbrann landið en það sem
úrslitum réð voru óvenju mikil og
hörð frost um mánaðamótin ágúst
og september sem virtust alveg
stöðva kornþroska. Fram að þeim
tíma voru horfur á mjög þokka-
legri uppskeru. Þrátt fyrir þetta
eru menn hér bjartsýnir og verður
væntanlega sáð byggi í mun fleiri
hektara á næsta vori en í sumar.
FREYR— 155