Freyr - 15.02.1983, Blaðsíða 16
,,Ég vil hvetja bændur til að skoða hvað þeirra
eigin ferðaskrifstofa hefur upp á að bjóða“
segir Helgi Jóhannsson sölustjóri Samvinnuferða í viðtali við Frey.
Hvern langar ekki til þess að hleypa heimdraganum, sjá heiminn og kanna nýja stigu?
Samvinnuferðir skipuleggja ódýrar utanlandsferðir fyrir almenning nú á þessu ári
eins og áður. Nokkur fjölmenn landssamtök eru meðal eigenda Samvinnuferða, þ. á m.
Stéttarsamband bœnda. Félagar í þessum almannasamtökum fá afslátt á ákveðnum
ferðum sem ferðaskrifstofan skipulcggur. Undanfarin ár hafa Samvinnuferðir boðið
bœndum og fjölskyldum þeirra upp á ódýrar ferðir, einkum til Norðurlanda.
Freyr leitaði frétta hjá Helga Jó-
hannssyni, sölustjóra, um hvað
þeir hjá Samvinnuferðum hefðu á
prjónunum og hvað ferðaskrif-
stofan býður upp á sem hentar
bændum.
- Við höfum undanfarið verið
að vinna að ferðaáætlunum fyrir
1983, sagði Helgi. Bændur og
þeirra fjölskyldur eiga eins og aðr-
ir aðgang að öllum ferðum Sam-
vinnuferða, en fá auk þess nokk-
urn afslátt á vissum ferðum sem
ferðaskrifstofan skipuleggur. í
fyrra var sá afsláttur 800 kr. á
mann á ferðum til Ítalíu, Júgó-
slavíu, Grikklands og sumarhús-
anna í Danmörku.
Auk þess fengu þeir, sem
keyptu farseðla í þessar ferðir
ókeypis fargjald innanlands, að
heiman til Reykjavíkur og heim
aftur.
- Við byrjuðum á þessu í fyrra
vegna þess hve aðildarfélagar
Samvinnuferða eru dreifðir um
landið og okkur fannst synd að
136 — FREYR