Freyr - 15.02.1983, Qupperneq 15
Heimflutt limbur afreka íÞistilfirði íágúst 1981. (Ljósm. Á. G. P.).
viðar. Það eru fluttir inn katlar
sem eru bæði fyrir rafmagn og
timbur. Hitastillirinn er stilltur á
t. d. 60 stiga vatnshita með raf-
magni og segjum 65°C með eldi-
viði. Svo er kveikt upp með viði á
morgnana og þegar vatnið hefur
hitnað upp í 60°C, slokknar á
rafmagninu. Er svo kynt með eldi-
viði yfir daginn og þá er vatnið
65°C heitt. Ef af einhverjum
ástæðum brennur út úr katlinum,
t. d. á kvöldin eða þegar fólk fer
af bæ, þá tekur rafmagnið við.
Þetta eru katlarnir sem Árni
hlunnindaráðunautur hefur verið
að kynna. Þeir eru mjög góð
kyndingartæki. Við höfum reynslu
af þeim því faðir minn keypti einn
norður, en nauðsynlegt er að eldi-
viðurinn í þá sé þurr. Það er líka
svo margt sem til fellur fleira en
viður, sem hægt er að brenna.
Er hægt að láta við í þessa katla til
sólarhrings?
Pétur: Það er önnur gerð katla,
sem mata sig sjálfir, en eru raf-
tengdir og brenna kurluðum viði.
Það er að mörgu leyti gott að geta
sett kurlaðan við í sekki, en hann
þarf að vera þurr, annars hitnar í
honum eins og heyi í hlöðu. Ég
hef hins vegar aldrei orðið var við
að hitnað hafi í sagbingnum. Það
Mór og úrgangviður frá vinnslu rekaviðar, sem hentar vel í
lurkakatla. Fjœr eruvœnir drumbar sem bíða sögunar. (Ljósm.
Á. G. P.).
þarf að safna viðnum á haustin og
saga hann niður í hæfilega búta. í
kubbaketil þarf að jafnaði að bæta
tvisvar yfir daginn fram yfir kvöld-
mat, en þá getur rafmagnið tekið
við.
Jón: Ég hef stóran, venjulegan
miðastöðvarketil í Höfnum, sem
tekur þessi ósköp og hitnar fljótt
og mikið. Ég brenni við í honum.
Pétur: Það eru margir komnir
með nýju gerðina af kötlum á
Ströndum.
Jón: Grímur á Kirkjubóli er
ánægður með sinn ketil en það ber
öllum saman um að það þurfi að
vera vel þurrt í þá.
Margt var fleira skrafað þótt það
verði ekki rakið hér. En að lokum
má minna á grein Árna G. Péturs-
sonar um lurkakatla á Ströndum í
23. tbl. Freys á sl. ári.
J.J.D.
Auglýsing um eftirgjöf á
verðskerðingu.
Þeir bændur sem hafa búmark undir 300 œrgild-
um og framleiddu umfram búmark sitt verðlagsárið
1981—1982 er hér með gefinn kostur á eftirgjöf á
verðskerðingu, ef megintekjur þeirra voru af land-
búnaði.
Umsóknir um slíka eftirgjöf skulu sendar Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins og fylgi þeim afrit af
skattframtali umsækjanda fyrir árið 1981.
Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. apríl 1983.
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Pósthólf 7040,
127 Reykjavík.
FREYR — 135