Freyr - 15.02.1983, Blaðsíða 18
Agnar Guðnason blaðafulltrúi bœndasamtakanna og Samvinnuferðir hafa skipulagt margar
ferðir norskra bœnda til íslands undanfarin sumur. Einkum hafa frændur okkar frá Vestur-
' Noregi verið duglegir að ferðast hingað. Pessi hópur er frá Hörðalandi, Hordaiand Bondeiag
sumarið 1982. Undanfarin ár liefur frú Anna Syivia Haukás, skrifstofustjóri þessa norska
búnaðarsambands staðið fyrir bændaferðum til íslands. Alls hafa 300 manns komið hingað
undir hennar fararstjórn. Sumir koma hvað eftir annað, t. d. Aksnes, hvítklœddi maðurinn á
myndinni, annarfrá hœgri í miðröð, sem kom í fjórðasinn til íslands ísumar sem leið og Peter
T. Molaug, bóndi ogfyrrum Stórþingsmaður (sitjandi lengst t. v.), sem hefur komið þrisvar.
Anna Sylvia Haukás stendur lítið eitt til hægri í miðjum hópnum.
Frá heimsókn grænlenskra bœnda 1968. Aftast t. h. frá Sesselja Lund ritstjóri
grænlensks búnaðartímarits. Við hlið hennar stendur Hans Motzfeld, þáverandi
formaður grœnlenska sauðfjárræktarfélagsins. Myndin var tekin í boði landbúnaðar-
ráðherra, sem var Ingólfur Jónsson.
rænir bændur til íslands og dvelja
hér á meðan íslenskir starfsbræður
þeirra fara utan.
Vegna þessarar góðu sætanýt-
ingar eru fargjöldin ekki nema
þriðjungur fargjalds með áætlun-
arflugi á þessa staði, þrátt fyrir öll
sérfargjöld. Til dæmis þá kostaði
ferð með þessu sniði til Þránd-
heims í fyrrasumar 2000 krónur á
sama tíma og fargjöld með áætlun-
arflugi á sömu leið voru 6500 kr.
Við þurfum hins vegar aðstoð
aðildarfélaga okkar til þess að
nýta tómu flugvélarnar. Vera má
að við höfum ekki kynnt þennan
ferðamáta nógu vel til þess að
unnt hafi verið að fullnýta flug-
ferðir á móti útlendingum.
Hvert verður farið í sumar á
ykkar vegum?
- Ráðgert er að fara til Tromsö
21. júní og verður samvinna við
138 — FREYR