Freyr - 15.02.1983, Blaðsíða 30
Sameiginleg ákvæði.
Ef jörð er seld og seljandi lánar
hluta af söluverðinu með skulda-
bréfi til minnst 3ja ára má dreifa
þeim hluta söluhagnaðarins sem
svarar til hlutdeildar skuldavið-
urkenningarinnar í heildarsölu-
verði (hámark 7 ár).
9. Persónuframta! (skattframtal
1983)
Nokkur atriði til minnis:
Eignir.
E.l.
í reit 02 færist af landbúnaðar-
framtali hrein eign (mismunur á
eignum og skuldum á fjórðu síðu
landbúnaðarframtals).
E.2.
Bílar færast til eignar á upphaflegu
kaupverði.
E.3.
Ibúðarhús færist á gildandi fast-
eignamatsverði. Nýbygging á
íbúðarhúsi færist á kostnaðarverði
ef fasteignamat er ekki fyrir
hendi.
E.4.
Hlutabréf færast á nafnverði.
Arður færist í reit 09 og einnig í 74
á 4. síðu framtals. í reit 82 færist
arður til frádráttar þó að hámarki
10% af nafnverði. Þó að hámarki
8 266 hjá einhleypingi og 16 530
hjá hjónum. Hlutabréf í Flug-
leiðum hf. færast hér en þau eru
nú framtalsskyld.
E.5.
Inneignir í bönkum færast í þenn-
an reit en eru samt sem áður
eignarskattfrjálsar. Ef viðkom-
andi skuldar vegna íbúðarhúsa-
byggingar, bílakaupa eða annarra
persónulegra skulda (S.l.) skerð-
ist eignarskattfrelsi innstæðna sem
því nemur. Vextir eru hinsvegar
alltaf skattfrjálsir af inneignum í
bönkum, sem tilheyra persónu-
framtali.
E.6.
Útistandandi skuldir t. d. vegna
sölu á bíl færist í reit E.6. Sama
gildir um stofnsjóð í kaupfélagi,
en ekki stofnsjóð í afurðasölufé-
lögum. Ef búrekstur er stundaður
þá færist hann á landbúnaðar-
framtal. Vaxtartekjur af innistæð-
um í reit E.6. eru einnig framtals-
skyldar en skattfrjálsar. Þeir sem
eru að byggja íbúðarhús og not-
færa sér „vaxtagjöld til frádrátt-
ar“ þá skerðist sá vaxtafrádráttur
sem þessum vaxtatekjum nemur.
E.7.
Aðrar eignir, t. ,d. hjólhýsi.
E.8.
Innistæður barna fæddra 1967 eða
síðar færast hér og ástæða er til
þess að ítreka það að gleyma því
ekki.
Skuldir.
S.l.
Hér færast skuldir vegna bygging-
ar íbúðarhúsa eða endurbóta á
því. Skuldir vegna búrekstrar fær-
ast á landbúnaðarframtal. Skuldir
skal færa eins og þær standa um
áramót með áföllnum verðbótum
á höfuðstól og sama gildir um
vaxtaaukalán. Kvittanir frá
bönkum sýna yfirleitt rétta stöðu
skulda þ. e. a. s. með áföllnum
verðbótum eða þeim hluta vaxta
sem lagður er við höfuðstól.
Vaxtagjöld.
Vaxtagjöld færast í aftari dálk
„Önnur vaxtagjöld“ nema hjá
þeim, sem eru að byggja íbúðar-
hús eða hafa keypt jörð með íbúð-
'arhúsi. Þeir færa vexti og gjald-
fallnar verðbætur á afborganir og
vexti í dálknum „Vaxtagjöld til
frádráttar“.
Fasteignaveðskuldir, sem upp-
haflega voru tekin til tveggja ára
eða lengri tíma og sannanlega
stofnað til vegna öflunar íbúðar-
húsnæðis til eigin nota færast alltaf
í dálkinn „Vaxtagjöld til frádrátt-
ar“. í þennan áálk færast einnig
vaxtagjöld af öðrum skuldum
vegna íbúðarhúss þó með þessum
takmörkunum:
1. í þrjú ár, talið frá og með
kaupári ef bóndi hefur keypt
jörð með íbúðarhúsi.
2. í sex ár talið frá og með því ári
þegar bygging er hafin eða til
og með því ári, sem flutt er í
íbúðarhúsið.
Sama gildir varðandi frádrátt
vaxta af skuldum, sem stofnað var
til vegna endurbóta á íbúðarhús-
næði til eigin nota, enda nemi
heildarkostnaður við endurbætur
7% eða meir af fasteignamati
íbúðarhúsnæðis í árslok.
í dálkinn „Önnur vaxtagjöld"
færast öll önnur vaxtagjöld
þ. m. t. afföll og gengistöp af
öllum öðrum skuldum, sem ekki
eru tengd atvinnurekstri (bú-
rekstri) en þau færast á landbún-
aðarframtal.
Verðbótaþáttur vaxta af svo-
nefndum vaxtaaukalánum telst til
vaxta en ekki verðbóta. Með
vaxtagjöldum má teja lántöku-
kostnað, stimpilgjöld og þesshátt-
ar kostnað. Athygli skal vakin á
því að lán út á íbúðarhús, sem
tekin hafa verið hjá Stofnlána-
deild eru stjörnumerkt á kvittun-
inni. Þessi lán eiga ekki að færast
á landbúnaðarframtal heldur á
persónuframtal ásamt vöxtum af
þeim í dálkinn „Vaxtagjöld til
frádráttar“.
Nokkur atriði önnur.
í leiðbeiningum ríkisskattstjóra
eru framangreind atriði skýrð ítar-
lega og er sjálfsagt að lesa þær
leiðbeiningar.
Sambýlisfólk.
Karl og kona, sem búa saman í
óvígðri sambúð og eiga sameigin-
legt lögheimili, eiga rétt á því að
telja fram og vera skattlögð sem
hjón, ef þau hafa átt barn saman
eða konan er þunguð eða sambúð-
in hefur varað samfleytt í a. m. k.
tvö ár, enda óski þau þess bæði
skriflega.
Samsköttun borgar sig ekki
nema að annar aðilinn hafi mjög
litlar tekjur en hinn miklar og eða
eignir annars aðilans séu miklar
en hins litlar eða engar.
150 — FREYR