Freyr - 15.02.1983, Síða 31
Umsókn um lækkun tekjuskatts.
Undir vissum kringumstæðum er
heimilt að sækja um lækkun á
tekjuskatti og einnig eignaskatti.
1. Ef ellihrörleiki, veikindi, slys
eða mannslát hafa skert gjald-
þol manns verulega.
2. Ef á framfæri manns er barn
sem haldið er langvinnum sjúk-
dómum eða er fatlað eða van-
gefið og veldur framfæranda
verulegum útgjöldum umfram
venjulegan framfærslukostnað
og mótteknar bætur.
3. Ef maður hefur foreldra eða
aðra vandamenn sannanlega á
framfæri sínu.
4. Ef maður hefur veruleg útgjöld
vegna menntunar barna sinna,
16 ára og eldri.
5. Ef maður hefur orðið fyrir
verulegu eignatjóni sem hann
hefur ekki fengið bætt úr hendi
annarra aðila.
6. Ef gjaldþol manns hefur skerst
verulega vegna tapa á útistand-
andi kröfum, sem ekki stafa frá
atvinnurekstri hans.
7. Ef maður lætur af störfum
vegna aldurs og gjaldþol hans
skerðist verulega af þeim
sökum.
Til þess að skattstjórar geti úr-
skurðað framteljanda fyrir álagn-
ingu gjalda er nauðsynlegt að
fullnægjandi greinargerð fylgi
framtali umsækjanda, annað
hvort á sérstökum eyðublöðum,
sem fást hjá skattyfirvöldum eða á
annan hátt.
Sjá leiðbeiningar ríkisskatt-
stjóra.
Lokaorð.
Leiðbeiningar þessar eru engan
veginn tæmandi, en ég vona að
þær komi að gagni. í fyrra ritaði
ég einnig grein í Frey nr. 5 og þar
er sýnt dæmi um útfyllingu á fyrn-
ingarskýrslu, sem er enn í fullu
gildi að öðru leyti en því að verð-
bólgustuðull er nú 1,5378.
Best er að byrja á því að flokka
allar nótur, og leggja saman
kostnaðarliði og byrja síðan að
færa inn. Lesa aðeins þær
leiðbeiningar, sem fjalla um þann
þátt sem verið er að vinna í í hvert
skipti, en ekki að lesa allar
leiðbeiningar í einu.
Læt þetta nægja í þetta sinn.
BÆNDUR,
BÍLA VERKST/EÐJ
fog aðrir eigendur Land-Rover
og Range-Rover bifreiða athugið!
HÖFUM ÚRVAL VARAHLUTA OG BODDÝHLUTA í LAND-ROVER,
EINNIG VARAHLUTI í RANGE-ROVER OG MITSUBISHI
Þekking og reynsla
tryggir þjónustuna.
Varahlutaverslun Fjölnisgötu 1B, Akureyri
Simi 96-21365
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR - HEILDSALA - SMÁSALA
FREYR — 151