Freyr - 15.02.1983, Page 33
Tafla 2. Kjarnfóðurnotkunin eftir burðartíma kúnna.
Burðarmánuðir Kjarnfóður kg Hlutfalls- leg kjarn- fóðurnotkun Kjarnfóður, kg Mjólk, kg
Janúar 930 114 0.213
Febrúar 858 105 0.206
Mars ' 809 100 0.201
Apríl 763 95 0.195
Maí 710 89 0.192
Júní 680 85 0.188
Júlí 696 87 0.192
Ágúst 754 93 0.211
September 780 95 0.220
Október 1009 123 0.222
Nóvember 997 121 0.220
Desember 988 119 0.221
ar áhrif sem metin voru í skýrslu-
haldinu í lok þriðja ársfjórðungs á
síðasta ári. I þeirri athugun voru
með allar heilsárskýr, sem fundust
þá á skýrslum, og afurðir þeirra
metnar sem hlutfall af afurðum
heilsárskúa á sama búi. í þeim
samanburði er ekki leiðrétt vegna
aldurs kúnna en það er aftur á
móti gert í burðartímastuðlum.
Þessi áðurnefndu skýrsluárs-
áhrif koma einkar skýrt fram í
þessum tölum. Slíkt segir okkur
að draga verði varkárar ályktanir
af þessum tölum. Þær sýna þó að
kýr sem bera að vori og fyrri hluta
sumars, mjólka minna en kýr sem
bera á öðrum árstímum. Eg hef
metið þessi áhrif hjá fyrstakálfs
kvígum út frá mjólkurskeiðsafurð-
um þar sem má meta burðartíma-
áhrif óháð skýrsluári. Þær tölur
bentu til að hér á landi fáist 8—
12% meiri afurðir hjá kúm sem
bera á miðri innistöðu en þeim
sem bera að vori eða snemma
sumars. Ástæðan til að stór hluti
kúnna hér á landi ber um þessar
mundir að vori getur því ekki
verið von um meiri afurðir, heldur
þvert á móti.
Það sem máli skiptir í sambandi
við framleiðslukostnað mjólkur er
m. a. kjarnfóðurnotkunin við
framleiðsluna. Eg kannaði því
nokkuð nánar kjarnfóðurnotkun
eftir burðartíma kúnna. Til að
kanna þetta valdi ég út þau bú í
skýsluhaldi nautgriparæktarfélag-
anna þar sem skráning á
kjarnfóðurnotkun virtist í lagi og
fullar skýrslur lágu fyrir við lok
þriðja ársfjórðungs 1982. Öllum
búum með færri en 8—10 heilsárs-
kýr var einnig sleppt. É.g náði á
þennan hátt í upplýsingar frá nær
400 búum þar sem voru nær 7000
heilsárskýr.
I töflu 2 getur að líta niðurstöð-
ur um kjarnfóðurnotkun eftir
burðarmánuði. Þar kom í Ijós,
eins og vænta mátti, að
kjarnfóðurnotkun er meiri hjá
kúm sem bera að hausti og fyrri
hluta vetrar en hjá þeim sem bera
að vori og fyrri hluta sumars.
Þegar kjarnfóðurnotkun er mæld
á hvert kg mjókur verður þessi
munur samt frekar lítill eða rúm
30 g af kjarnfóðri á hvert kg
mjólkur í mismun á þeim mánuð-
um þar sem notkun er mest og
minnst. Mér var einnig mögulegt í
skýrslum að kanna kjarnfóður-
notkun á hvert kg mjólkur í hverj-
um ársfjórðungi. í þeim saman-
burði er sleppt öllum kúm, sem
mjólka minna en 100 kg á viðkom-
andi ársfjórðungi. Þetta er gert til
að ekki komi með mjög óeðlilegar
tölur vegna geldstöðufóðrunar.
Þessar niðurstöður getur að líta í
töflu 3. Eins og við mátti búast
þarf verulega minna kjarnfóður til
framleiðslu á sumarmjólk en
vetrarmjólk og er munur á
kjarnfóðurnotkun á hvert kg
mjólkur á fyrsta og þriðja árs-
fjórðungi yfir 70%.
í þeim héruðum þar sem
skýrsluhald nautgriparæktarinnar
er öflugast, Eyjafirði og Árnes-
sýslu, er fjöldi kúnna það mikill,
að mikið er á tölunum byggjandi.
Að mínu mati kemur einkar at-
hyglisverður munur fram á þess-
um héruðum og er hann sýndur í
töflu 4. Samkvæmt henni virðist
kjarnfóðurnotkun á hvert kg
mjólkur töluvert meiri í Árnes-
sýslu en í Eyjafirði. Nú verður
þess að gæta að þetta ár var hey-
forði bænda í Árnessýslu víða tak-
markaður eftir kalsumarið 1981
og kann það að gera þennan mun
meiri en ella. Engu að síður er
ástæða til að ætla að þarna komi
einnig fram munur í heygæðum
milli landshluta. Þetta undirstrik-
ar það hve mikil og góð gróffóður-
framleiðsla er mikið undirstöðu-
atriði fyrir hagkvæma mjólkur-
framleiðslu á innistöðumánuðum.
Á þriðja ársfjórðungi verður þessi
munur Eyfirðingum aftur á móti
óhagstæður. Þarna koma að vísu
fram áhrif þess að vorbærur eru
hlutfallslega mun fleiri í Eyjafirði
en Árnessýslu og kýr því í meiri
afurðum þar í þriðja ársfjórðungi.
Ég tel að þarna komi ef til vill
einnig í Ijós að veiki hlekkurinn í
fóðrun kúnna í Eyjafirði sé öðrum
fremur síðsumar- og haustfóðrun.
Tafla 3. Kjarnfóðurnotkun á framleiðslu mjólkurkg. í hverjum ársfjórð-
ung’-
kg kjarnfóður
kg mjólk
1. Ársfjórðungur ....................................... 0.243
2. Ársfjórðungur ....................................... 0.222
3. Ársfjórðungur ....................................... 0.137
4. Ársfjórðungur ....................................... 0.222
FREYR — 153