Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1983, Síða 36

Freyr - 15.02.1983, Síða 36
Björn Sigurbjörnsson tekur við stjórn FAO-deildar í Vín. Dr. Björn Sigurbjörnsson forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins hefur fengið ráðherraleyfi til þess að starfa hjá Sameinuðu Þjóðunum í þrjú ár. Starfið er í því fólgið að veita forstöðu deild hjá Matvœla- og landbúnað- arstofnun S.Þ. (FAO), en aðili að þeirri deild er einnig Alþjóðakjarnorkustofnunin. Aðsetur deildarinnar er í Vínar- borg, en rannsóknastofur hennar eru 30 km utan við borgina. Þetta er ein af fjórum landbúnaðar- deildum FAO og hún hefur það að markmiði að skipuleggja og styrkja landbúnaðarrannsóknir, einkum í þróunarlöndum. Frétta- maður Freys átti stutt viðtal við dr. Björn áður en hann fór utan. í þessum rannsóknum er lögð mikil áhersla á notkun geisla- virkra efna og kjarnorkugeisla, sagði Björn. Geislarnir, einkum gammageislar og nifteindir, eru notaðir til þess að kynbæta nytja- plöntur, aðallega kornafbrigði, og líka til þess að vana skordýr í því skyni að hefta útbreiðslu skað- dýra. Geislar eru ennfremur not- aðir til þess að auka geymsluhæfni matvæla, einkum kjöts og garð- ávaxta. Þá eru geislavirk efni not- uð til þess að rannsaka næringu plantna. Með þeim er unnt að fylgjast með ferli tilbúins áburðar úr jarðveginum inn í ræturnar og um jurtirnar og jafnvel inn í búfé. Þessi efni eru auk þess mjög gagn- leg við rannsóknir á fóðrun búfjár. Byrjað er að nota þessa tækni, bæði á Rannsóknastofnun land- búnaðarins og á tilraunastöðinni á Keldum. Við FAO-deildina í Vín vinna um 100 manns þ. á. m. einn ís- lendingur, dr. Guðni Harðarson, örverufræðingur. Hann rannsakar níturnám belgjurta. Dr. Friðrik Pálmason á Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins er að hefja samstarf við Guðna um rannsóknir á níturnámi ís- lensks hvítsmára og Alaskalúpínu. Deildin í Vín styrkir rann- sóknarverkefni í um 100 ríkj- um Sameinuðu Þjóðanna, aðal- lega í Asíu Afríku og Suður— Ameríku. Dr. Björn Sigurbjörnsson var, áður en hann tók við stjórn Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins, aðstoðarforstjóri FAO-deildar- innar árin 1968—1974. Þess má að lokum geta að stofn- unin hefur styrkt korn- og fræ- rannsóknir bæði á Sámsstöðum og Korpu. Altalað á kaffistofunni Úr úrklippusafninu Þaö sem mun einkenna næsta ár er þaó aö hvers kyns bönd munu slakna og slitna í æ ríkara mæli; ekki bara flokksbönd og aörir andlegir átthaga- fjötrar, heldur einnig þau bönd sem reyra einstaklinginn í einkalífinu. Fjölþjóöamenningin er á góðri leið með að uppræta stóran hluta þess heimóttarskapar og fjallkonurembu sem birtist i flirulegu glotti islenska sveitamannsins; hún heldur innreiö sína á sífellt fleiri sviö: klæðaburö, matreiöslu, tómstundaiöju, skoö- anaskipti og næstum alla þætti daglegs Iífs. Hrafn Gunnlaugsson í grein sem ber yfirskriftina: „Fjöl- þjóðamenningin upprœtir fjallkonurembuna". DV 12. jan. 1983, bls. 33. 156 — FfíEYfí

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.