Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1993, Síða 9

Freyr - 01.12.1993, Síða 9
23.’93 FREYR 845 Þennan morgun eftir Hruna- ferðina tilkynnti ég bræðrum mínum að ég ætlaði í langskólanám í landbúnaðarfræðum. Við þing- uðum um þetta og kom þá í ljós að Þorgeir hafði fengið hliðstætt til- boð frá kunningafólki okkar í Reykjavík. Við fórum svo báðir í Menntaskólann í Reykjavík og lukum stúdentsprófi eftir tveggja ára nám, sátum í 4. og 6. bekk. Það var náttúrlega vitleysa upp á náms- árangur að gera þetta svona, en við lögðum allt kapp á að ljúka námi sem fyrst og urðum báðir stúdentar árið 1938. Fljótlega eftir það skildust leiðir því að ég dreif mig til Kaupmanna- hafnar með Gullfossi, en Þorgeir innritaðist í læknisfræði við Háskóla íslands. Þetta var þriggja ára nám við Landbúnaðarháskólann í Kaup- mannahöfn og meðal þeirra sem hófu nám með mér í búfræði þeir Sigurður Elíasson og Björn Bjarn- arson. Ég valdi almenna búfjárrækt og aðalkennarinn var prófessor Jespersen. Hann var einn af þremur stjórnendum við Forsögslaboratoriet við skólann. Hansen-Larsen var hinn aðalpró- fessorinn og kenndi nautgripa- rækt. Eftir að reglulegu námi var lokið fór ég í viðbótarnám þannig að ég var alls 5 ár í námi og að störfum við skólann. Þú ert þarna á stríðsárunum, hvernig var það? Já, Þjóðverjar hernámu Dan- mörku vorið 1940. Fyrsta haustið varð maður ekki var við miklar breytingar en smám saman hertust tökin. Maður varð furðu lostinn að sjá menn liggja skotna á götunni, og það úr báðum fylkingum. Ég get sagt að ég gerði allt sem ég gat til að forðast þá staði þar sem átök voru. Ég sá ekki að ég gæti neinu breytt þar um. Ég lenti hins vegar í því að mér var stillt upp við vegg með hendur uppréttar þar sem leit- að var á mér. Það var ekkert þægi- legt. í eitt skipti var ég á veitinga- húsi með kunningja mínum og þá Hjalti Gestsson, nýstúdent 1938. óðu að okkur þýskir hermann með byssustingi. Við hörfuðum undan og þá varð það okkur til bjargar og e.t.v. lífs að inn kom þýskur hers- höfðingi. Hann sá hvað var að gerast og skakkaði leikinn og rak okkur út. Við mótmæltum en hann sagði þá: Skiljið þið ekki að ég er að bjarga lífi ykkar. Það hefur ekki hvarlað að ykkur að hœtta námi? Nei, það var ekkert að fara, allar leiðir lokaðar. Höfðu íslendingar í Höfn mikið samband sína á milli á stríðsárunum? Já, það var bæði Stúdentafélag og íslendingafélag. í Stúdentafélag- inu voru haldnir reglulega fundir og það var mjög öflugur félags- skapur. Þar voru flutt erindi og lesið upp. Jón Helgason prófessor var þar mjög virkur og það var eins og kennslustund að hlýða á hann. Hann las stundum úr óprentuðum v'erkum Halldórs Kiljan Laxness. Þarna talaði líka Skúli Guðjónsson prófessor í Árósum, Jakob Bene- diktsson, Guðmundur Kamban og Kristján Albertsson. Við fengum þarna gífurlega góða kynningu á íslenskum bókmenntum og mætti margt um það segja. Ég var for- maður Stúdentafélagsins í eitt ár og ég man að ég fékk Guðmund Kamban oftar en einu sinni til að hafa framsögu. Samgöngur heim voru engar og enginn póstur fyrr en síðasta stríðs- árið að svolítið raknaði úr, þannig að það komu blöð í sendiráðið. Sendiherra síðustu stríðsárin var Jón Krabbe, ógleymanlegur úrvals maður. Ég vil halda því fram að það gat ekki rammíslenskara samfélag en íslenska nýlendan í Höfn á stríðs- árunum. Búnaðarháskólinn í Kaupmannahöfn þar sem Hjalti stundaði nám.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.