Freyr - 01.12.1993, Side 13
23.’93
FREYR 849
ráðunautr BÍ bað mig að taka sýn-
ingar fyrir sig strax vorið eftir. Ég
man að fyrsta sýningin sem ég
dæmdi á var á Eyrarbakka, fyrir
austan kirkjuna. Hún var haldin á
aðalgötunni. Ég sagði: Hvað er
þetta, ekki eigum við að vera
hérna? Jú, hvergi betra, sögðu
þeir. Já, enhvað ef það kemur bíll,
sagði ég. Pá verður bfllinn að bíða,
sögðu þeir, þetta er bara fjórða
hvert ár sem við höldum kúasýn-
ingu. Það komu svo fáeinir bflar og
bflstjórarnir voru hinir rólegustu.
Ég spurði Pál, hvernig ég ætti að
dæma? Þú verður að ráða því
sjálfur, sagði hann. En ég þarf
einhverjar reglur, sagði ég. Mínar
reglur eru búnar að gilda nógu
lengi, þú verður að búa til þínar
reglur, sagði hann.
Ég fór að hugsa málið og sá þá
strax að það var eitt sem var bráð-
nauðsynlegt að ráða bót á en það
voru júgrin og spenarnir. Þetta átti
líka við um dönsku rauðu kýrnar,
en Danir áttu líka Jersey-kýr og
þær voru með góð júgur og góða
spena. Núna er þetta allt orðið
gjörbreytt hér hjá okkur því að
markvisst hefur verið unnið.
I sauðfjárræktinni hefur líka
margt gerst. Þegar ég hef störf
herjar mæðiveikin og garnaveikin í
öllu sínu veldi á svæði Bs. Suður-
lands, nema í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Aftur á móti var féð þar
víðast lélegt að allri gerð. Par var
þó til kollóttur stofn frá Ólafsdal
og af Ströndum sem var talsvert
ræktaður. Hann var aðallega í
Meðallandi og Landbroti og hafði
dreifst mest frá Seglbúðum en líka
frá Suður-Vík. Þetta var nokkuð
Á hrútasýningu á Skeiðum 1975. Hjalti les upp dóm á hrúti sem Ingvar
Þórðarson á Reykjum heldur í. - Freysmynd.
Hjalti Gestsson var ímörg ár búnaðarþingsfulltrúifyrir Sunnlendinga. Þessi mynd er affulltrúum á Búnaðarþingi 1971.
Fremri röð frá vinstri: Jón Gíslason, Norðurhjáleigu, Ragnar Ásgeirsson, ráðunautur, Ásgeir Bjarnason, Asgarði,
Þorsteinn Sigurðsson, Vatnsleysu, Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri, Ásgeir L. Jónsson, ráðunautur, Gísli
Magnússon, Eyhildarholti. Önnur röð frá vinstri: Egill Bjarnason, Sauðárkróki. Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn,
Sigurmundur Sigurðsson, Syðra-Langholti, Egill Jónsson, Seljavöllum, Hjalti Gestsson, Selfossi, Friðbert Pétursson,
Botni, Sigurður J. Líndal, Lækjamóti, Guðmundur Jónasson, Ási. Þriðja röð frá vinstri: Gunnar Guðbjartsson,
Hjarðarfelli, Teitur Björnsson, Brún, Sigurjón Friðriksson, Ytri-Hlíð, Grímur Arnórsson, Tindum, Snœþór Sigur-
björnsson, Gilsárteigi, Ingimundur Ásgeirsson, Hœli. Aftasta röð frá vinstri: Jón Egilsson, Selalœk, Lárus Ág.
Gíslason, Miðhúsum, Stefán Halldórsson, Hlöðum, Jósep Rósinkarsson. Fjarðarhorni, Magnús Sigurðsson, Gils-
bakka, Þórarinn Kristjánsson, Holti, Jóhann Jónasson, Sveinskoti.