Freyr - 01.12.1993, Side 22
858 FREYR
23.'93
Ný lög um dyrasjukdoma og
varnir gegn þeim
Brynjólfur Sandholt, yfirdýralœknir
Ný lög, nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, voru samþykkt á Alþingi í
apríl sl. Með þessari lagasetningu er skipað í einn lagabálk ýmsum lagaákvœðum
sem gilt hafa um sjúkdóma í dýrum og varnir gegn útbreiðslu þeirra innanlands svo og
vörnum gegn því að búfjársjúkdómar berist til landsins.
Megin innihald eldri lagaákvæða
voru sett með það að markmiði að
útrýma sauðfjársjúkdómum, eins
og þurramæði, garnaveiki, kýla-
pest og síðar riðuveiki. Um það
giltu lög nr. 23/1956 um varnir
gegn útbreiðslu næmra sauðfjár-
sjúkdóma og útrýmingu þeirra
með síðari breytingum. I lögum nr.
11/1928 voru hins vegar ákvæði um
hvernig háttað er reglum um varnir
gegn því að dýrasjúkdómar berist
til landsins.
Aðdragandi þessara breytinga
var að landbúnaðarráðherra skip-
aði nefnd sem fékk það hlutverk að
yfirfara íslensk lagaákvæði sem
snertu búfjársjúkdóma og varnir
gegn þeim. Skyldi nefndin semja
eitt lagafrumvarp um þetta efni
með tilliti til breyttra aðstæðna frá
gildistöku laganna. í því sambandi
voru sérstaklega tilgreind lög nr.
11/1928 um varnir gegn því að gin-
og klaufaveiki og aðrir alidýrasjúk-
dómar berist til landsins, lög nr.
23/1956 um varnir gegn útbreiðslu
næmra sauðfjársjúkdóma og út-
rýmingu þeirra, lög nr. 3/1902 um
heimild til að banna innflutning
ósútaðra skinna og húða, lög nr.
25/1923 um berklaveiki í nautpen-
ingi og lög nr. 22/1977 um sauðfjár-
baðanir.
Sauðfjársjúkdómanefnd
lögð nlður.
í ofangreindri breytingu felst sú
skipulagsbreyting að Sauðfjársjúk-
dómanefnd er lögð niður og starf-
semi á hennar vegum er sameinuð
Brynjólfur Sandholt.
embætti yfirdýralæknis og hefur
yfirdýralæknir nú á hendi stjórn
allra þátta dýrasjúkdómavarna
undir yfirstjóm landbúnaðarráð-
herra.
Ýmis ákvæði í eldri lögunum
þurftu endurskoðunar við þar sem
ný viðhorf í baráttunni við sjúk-
dóma vegna nýrra greininga-
aðferða og meðferðar þeirra með
tilkomu nýrra lyfja gerðu það
nauðsynlegt. í nýju lögunum er
fellt niður ákvæðið um skylduböð-
un alls sauðfjár í landinu annað
hvert ár. Pessi skylda hefur sætt
mikilli gagnrýni fjölmargra bænda
síðari ár þar sem kláða og öðrum
óþrifum í sauðfé var útrýmt úr
mörgum varnarhólfum við fjár-
skiptin og með þessari skyldu væri
verið að leggja verulegan kostnað
á bændur að óþörfu. Nú er þess
vænst, þar sem kláði eða önnur
óþrif koma upp og lagt verður í
sérstakar aðgerðir gegn þeim, að
þá muni sauðfjáreigendur leggja
sig sérstaklega fram um að aðgerð-
irnar takist sem best og með sam-
eiginlegu átaki takist að útrýma
óþrifum á þessum svæðum. Pað
mun einnig aukinn þrýstingur frá
bændum sem nú eru lausir við
kláðamaur og lús í fé sínu að óþrif-
unum verði útrýmt alls staðar á
landinu til að forðast það að smit
berist inn á hrein svæði og þar þurfi
að hefja böðun á ný. Annað atriði
þar sem komið er til móts við óskir
bænda vegna breyttra aðstæðna í
landbúnaði er að nú má flytja
sláturfé yfir varnarlínur í slátur-
hús, þó með þeim skilyrðum að
flutt sé af heilbrigðara svæði og inn
á lakara svæði og að flutningatæki
séu sótthreinsuð sérstaklega milli
ferða. Með því er einni hindrun
rutt úr vegi sem talin er hafa komið
í veg fyrir aukna og betri nýtingu
sláturhúsa. Breytingunni fylgir
væntanlega hagræðing og lægri
sláturkostnaður, bæði framleið-
endum og neytendum til hagsbóta.
Nýmœli í nýju lögunum.
Hér á eftir verður stuttlega farið
yfir lögin um dýrasjúkdóma og
varnir gegn þeim og lýst hverjar
eru helstu breytingar sem gerðar
hafa verið með samþykkt þessara
laga samanborið við fyrri lög.
Fyrsta grein laganna er mun ítar-
legri en sambærileg ákvæði voru í
lögunum um varnir gegn út-