Freyr - 01.12.1993, Page 34
870 FREYR
23.’93
Greinarhöfundur með innfæddum áströlskum vini.
landbúnaði og menningu annarra
þjóða.
Ég lenti þreytt, en yfir mig
ánægð í Osló 10. apríl 1989, eftir
langt og strangt ferðalag og þriggja
daga dvöl í Singapore, með 37 kr. í
vasanum og tösku fulla af skítug-
um fötum. En rík af reynslu og
góðum minningum.
International Agrlcultural
Exchange Assoclatlon
IAEA eru samtök skiptinema
innan landbúnaðar, stofnað 1963 í
Danmörku, en aðildarlönd eru um
allan heim. Má þar nefna Ástralíu,
Canada, Bandaríkin, Nýja-
Sjáland, Japan og fjölmörg lönd í
Evrópu. Markmið IAEA er að
veita ungu fólki sem starfar við eða
hefur áhuga á landbúnaði tækifæri
til að fara erlendis og læra um
landbúnað og menningu annara
þjóða. Nemum er komið fyrir hjá
bændum og taka þeir þátt í dagleg-
um störfum. Aðeins einn nemi er á
hverju'm stað og er reynt eins og
hægt er að taka tillit til þeirra eigin
óska um val á landi og búgrein.
Nemi fær laun fyrir sína vinnu og
býr yfirleitt með fjölskyldu
bóndans.
Yfirleitt er dvölin á bilinu 6-10
mánuðir, en 14 mánuðir ef nemi
kýs að fara til tveggja landa. Er þá
skipt á miðju tímabili. Á öllum
stöðum er reiknað með 3-4 vikna
launalausum fríum.
Sex íslendingar hafa tekið þátt
hingað til, en um 1000 ungmenni
ferðast á vegum IAEA ár hvert.
Skilyrði fyrir þátttöku í IAEA eru
eftirfarandi:
Grundvallarkunnátta í enskri
tungu.
Aldur á bilinu 19-29 ára.
Hrein sakaskrá.
Engin böm á framfæri.
Ekki háð/háður vímuefnum.
Góð líkamleg og andleg heilsa.
Reynsla og áhugi á landbúnaði.
Ökuskírteini.
Verð fyrir þáttöku er á bilinu
kr.250.000 - 350.000 fyrir eitt land,
en 450.000 til 500.000 fyrir tvö
lönd.
Innifalið í verði er:
Góðar tryggingar og heilbrigðis-
þjónusta.
Flugfargjöld fram og til baka frá
Kaupmannahöfn.
Atvinnu- og dvalarleyfi.
Námskeið við komu á áfanga-
stað.
Gisting og morgunverður á
millilendingarstað þar sem slíkt
stendur til boða.
Ferð til Nýja-Sjálands.
Frh. afbls. 862.
Lupinus polyphyllus, sem er
náskyld alaskalúpínunni okkar.
Féð bítur hana mikið og við eigin
prófun fannst mér þessi lúpína
ekkert tiltakanlega beisk á bragð-
ið. Nokkuð erfitt er að koma þess-
ari lúpínu til eftir sáningu, en ef
það tekst virðist hún geta fjölgað
sér undir talsverðu beitarálagi.
Lúpína þessi á að líkindum afar
auðvelt með að breiðast út á
stórum hlutum verst farna beiti-
landsins í fjallahéruðunum. Snörp
Öll skipulagningarvinna hjá
IAEA.
IAEA byggist á sjálfboðavinnu,
og eru eingöngu fastir starfsmenn
aðalstöðva á launum. Nánari upp-
lýsingar veitir:
Elín Kjartansdóttir
Safamýri 91, kj. 108 Reykjavík
hs. 91-686379, vs. 91-686885.
umræða virðist í uppsiglingu um
hvort eigi að taka lúpínuna til víð-
tækra nota eða útrýma henni. Með
öðrum orðum, hvort hún sé illgresi
eða happafengur til að bæta illa
farið land.
Þrátt fyrir mikinn áhuga á
lúpínum á Nýja-Sjálandi sýndist
mér við komnir mun lengra í rann-
sóknum á nýtingu og vistfræði
lúpínunnar. Við höfum ýmsu að
miðla öðrum þjóðum í þeim efn-
um.