Freyr - 01.04.1994, Side 14
Jarðvegur og jarðvegseyðing
* Áætlaðarjarðvegsbirgöirjarðar.................. 3,8billjóntonn
* Árlegtjarðvegstapafnáttúrlegumorsökum . . 9milljarðartonna
* Árlegtjarðvegstap vegnalandnotkunar.13milljarðartonna
* Árlegtheildartapjarðvegs............22milljarðartonna
* Árleg eyðing skóga............................ 16,9milljónha
* Landsvæði eyddeðaaðeyðast................... l,2milljarðarha
(jafngildir stærð Indlands og Kína)
* Áætluð rýrnun landbúnaðarlands á hvern jarðarbúa
átímabilinu 1980-2000 ................................. 32%
Heimildir: Roberts, B.: The Healthof the World’s Lands: A Perspective. 7th ISCO
Conference Proceedings. 1993. Lake. E.B. and A.M. Shady: Erosion Reaches
Crisis Proportions. Agricultural Engineering. Nov. 1993. FAO: Protect and
Produce. Rev. ed. 1992.
Orsakir jarðvegseyðingar
* Vatnsagi ............................................56%
* Vindur ............................................28%
* Aðrarorsakir(landbrot, eiturefni, salt, sýrao.fl.) . 16%
Heimild: Lake, E.B. and A.M. Shady: Erosion Reaches Crisis Proportions.
Agricultural Engineering. Nov. 1993.
gerðir sem beitt var, bæði í land-
græðslu og skógrækt, leiddi í ljós að
allur kostnaður við þær var löngu
endurgreiddur. Innlend framleiðsla
á fræi til landgræðslu ein nægir til
þess að réttlæta allan kostnað við
Þjóðargjöfina. Aðrar ráðstafanir
sem gerðar hafa verið í landbúnaði
okkar, s.s. styrkir til jarðræktar,
áburðardreifing á beitilönd og út-
haga hafa auk þess orðið til að létta
beitarálagið á viðkvæmum svæðum,
þar sem friðun eða skerðing búfjár
hefði annars leitt til þess að viðkom-
andi byggðarlög leggðust í auðn.
Pað er nauðsynlegt að bændur og
aðrir notendur lands verði virkjaðir
til starfa til að vernda gróður og
jarðveg og þeim gerð grein fyrir
þeim áhrifum sem not landsins geta
haft á jarðveginn. Þau mega aldrei
verða til þess að landsgæðum hnigni.
Þar sem landverndaraðgerðir stofna
afkomu bænda í hættu, ber stjórn-
völdum skylda til að hlaupa undir
bagga. Viðhald byggðar á viðkvæm-
um svæðum má ekki byggja á of-
notkun beitilands til búvörufram-
leiðslu, nema ráðstafanir séu gerðar
til að næra gróðurinn. Annars verð-
ur að finna aðrar leiðir til að við-
halda byggð; ef þær finnast ekki er
miklu betra að byggð leggist niður,
a.m.k. tímabundið, en að hún leiði
til jarðvegseyðingar.
Ályktunin sem við getum dregið
af þessu er sú að allar áætlanir um
framþróun landbúnaðar og land-
nytja og hlutverk landsins til að
mæta matvælaþörf landsmanna eða
til útflutnings verða að taka mið af
ástandi og framleiðslugetu jarðvegs
og gróðurs. Markaðshorfur og vin-
sældir fslenskra landbúnaðarvara
mega ekki einar ráða stærð bústofns
í landinu. Ákvörðun á fjölda búfjár í
hverjum hreppi verður að taka mið
af beitarþoli landsins og framleiðslu-
getu og búfé má aldrei verða svo
margt að landspjöll geti orðið. Það
sama gildir um skipulagningu og
áætlanir um notkun Islands sem
ferðamannalands. Vinsældir lands-
ins fyrir ferðamenn og væntanlegur
gróði af því mega aldrei verða til
þess að umferð þeirra um landið
spilli á nokkurn hátt jarðvegi og
gróðri.
Það er göfugt og háleitt takmark
að stöðva alla jarðvegseyðingu á Is-
landi fyrir aldamót. Til þess höfum
við tæp sex ár. Tæknilega ætti ekkert
að vera því til fyrirstöðu. Spurningin
er hvort við höfum raunverulegan
vilja og bolmagn til þess. Til að ná
þessu takmarki þarf vel unnar áætl-
anir og hæfileikann, og reyndar
þjóðarsátt, til að einbeita kröftunum
að því að stöðva jarðvegseyðingu og
uppblástur þar sem slíkt á sér stað,
en láta önnur verkefni í uppgræðslu
og landgræðslu bíða. Þar sem nægj-
anleg gróðurþekja er fyrir, er óþarfi
að bæta við nýjum gróðri, þótt ein-
hverjum þætti hann fallegri. Slík
verkefni, bæði í skógrækt og annarri
ræktun verður að framkvæma að
frumkvæði og á kostnað viðkom-
andi. Fara verður að ráðum sérfræð-
inga á sviði landgræðslu og má eng-
Kerflð er ónýtt.
Frh. afbls. 241.
gætu stutt við bakið á mönnum með
mórölskum stuðningi.
Lilja er áhugasöm hestakona og
hefur verið að spá í hestaleigu og
kannski að taka hross í fóðrun eins
og Sunnlendingar gera.
Það er alveg fjárhagslegur grund-
völlur fyrir því að kaupa sér sauð-
fjárkvóta, segir Björn, en það þýðir
ekkert meðan kerfið er ónýtt. Menn
vita ekkert hvað verður næsta ár,
hvað verður mikið skorið niður,
um landnotanda líðast að hlíta ekki
þeim aðgerðum sem beita þarf til
þess að landeyðing stöðvist. Fjár-
hagslegt tjón sem af þessum aðgerð-
um hlytust yrði að bæta á einhvern
annan hátt en þann sem leiddi til
áframhaldandijarðvegseyðingar.
Ég vona að Islendingar beri gæfu
til þess að lyfta þessu Grettistaki, og
með því að endurgreiða landi sínu
skuldina sem safnast hefur saman
eftir rúma 1100 ára búsetu í landinu.
Landið hefur skapað grundvöll fyrir
þróun íslensks samfélags og ís-
lenskrar menningar. Það fer saman
að sýna landi okkar rækt og að rækta
með okkur menningu. Sýnum landi
okkar rækt og þá mun menning okk-
ar halda áfram að blómgast.
hvað margir fara framyfir utan
greiðslumarks.
Búin í Önundarfirði eru flest lítil,
heldur hann áfram, margir styðjast
við sjávarútveginn, sumir eru með
harðfiskverkun og nokkrir við út-
gerð en nú stendur sjávarútvegur
mjög höllum fæti með minnkandi
kvóta og steinbítur, sem er utan
kvóta, hefur brugðist Vestfirðingum
undan farin ár.
J.J.D.
2*6 FREYR-7*94