Freyr - 01.04.1994, Qupperneq 16
aukaskattskyld viðskipti. Þá þarf að
skila tryggingagjaldi, staðgreiðslu
skatta og loks skattskýrslu og land-
búnaðarframtali ásamt fyrninga-
skýrslu. Þó að bændur séu almennt
ekki bókhaldsskyldir (fyrir utan
VSK bókhald) þá hvílir engu að
síður á þeim sönnunarskylda og því
þarf að halda öllum gögnum til haga.
Hins vegar kemur svo að notkun
bókhalds sem stjórntækis í rekstrin-
um. Margir bændur færa nú orðið
bókhald annað hvort sjálfir eða not-
færa sér þjónustu búnaðarsambanda
eða annarra bókhaldsstofa. í byrjun
kann færsla bókhalds að virðast
flókin. Nokkurn tíma tekur að ná
tökum á þeirri vinnu sem bókhald-
inu fylgir og tæknileg vandamál virð-
ast oftar en ekki fylgifiskur tölvu-
tækninnar. Út úr öllu saman kemur
svo óskiljanleg runa af tölum og
pappírsflóðið eftir því.
I upphafi er mikilvægt að spyrja
þess hvaða upplýsingar ætlunin er að
fá úr bókhaldinu? í framhaldi af því
þarf að gera sér grein fyrir hvernig
þarf að standa að skráningu á upp-
lýsingunum þannig að svör fáist við
þeim spurningum sem settar voru
fram í upphafi. Eðlilegt er að gera
kröfu til þess að úr bókhaldinu megi
lesa eftirfarandi upplýsingar:
1. Eignabreytingar á ákvednu tíma-
bili.
2. Tekjur og gjöld á tilteknu tíma-
bili.
3. Hagnað eða tap af rekstrinum á
tilteknu tímabili.
4. Framlegð einstakra búgreina.
5. Einkaneysluna.
Eignabreytingar.
Með samanburði á efnahags-
reikningi í ársbyrjun og árslok og
með hliðsjón af rekstarreikningi má
lesa um eignabreytingar á tímabil-
inu. Margir spyrja sig eflaust hvort
verið sé að ganga á eignir búsins ár
frá ári, og sé svo þarf að leita skýr-
inga. Er langvarandi tap á rekstrin-
um (af hverju) eða er einkaneysla
meiri en búið getur staðið undir?
Hér má til dæmis skoða hlutfall höf-
uðstóls af heildareignum búsins
(eiginfjárhlutfallið), og bera saman
yfir nokkurra ára tímabil þær breyt-
ingar sem orðið hafa.
Tekjur og gjöld.
Af rekstrarreikningi má lesa um
tekjur og gjöld tímabils (ársins).
Mikilvægt er einnig að kynna sér
skiptinguna. Tekjum má skipta í
tekjur af búgreinum, t.d. mjólkur-
kúm, sauðfé, eggjum, hlunndind-
um, ferðaþjónustuo.s.frv. Síðan eru
ýmsar aðrar tekjur svo sem vaxta-
tekjur, tilfallandi leiga á vélum
o.þ.h. og loks óreglulegar tekjur
sem aðeins falla til endrum og eins,
t.d. söluhagnaður afvélum. Gjöldin
má flokka í breytilegan kostnað og
fastan kostnað. Eðlilegt er að gera
sérstaka grein fyrir vöxtum og af-
skriftum sem hluta af föstum kostn-
aði. Einnig getur verið um að ræða
óregluleg gjöld eins og t.d. tapaðar
viðskiptakröfur. Mismunur heildar-
tekna og heildargjalda búsins telst
síðan vera það sem búið hefur til að
greiða eiganda laun (ef þau eru ekki
meðtalin í gjöldum) og standa undir
hagnaði.
Framlegð.
Þegar reksturinn samanstendur af
mörgum búgreinum er oft mælt með
að nota framlegð sem mælikvarða á
frammistöðu einstakra búgreina.
Framlegð er reiknuð sem tekjur bú-
greinarinnar að frádregnum breyti-
legum kostnaði við búgreinina.
Þetta er því framlag búgreinarinnar
til að greiða sameiginlegan kostnað
allra búgreinanna, fasta kostnaðinn,
laun og til að skila hagnaði. Ef
reikna á framlegð þarf að tiltaka
hvaða búgrein tekjur og breytilegur
kostnaður tilheyra.
Til skemmri tíma litið á hver fram-
leiðandi mesta möguleika á að hafa
áhrif á breytilegan kostnað og þar
með framlegðina. Til lengri tíma
litið er hins vegar hægt að hafa áhrif
á heildarframleiðsluna (kaupa
greiðslumark eða auka afkastaget-
una) og hafa þannig áhrif á heildar-
framlegð rekstrarins. Útreikningar
á framlegð þjóna því mikilvægu hlut-
verki við stjórn rekstrarins. Bæði til
að byggja á við áætlanagerð (t.d. við
mat á greiðslugetu vegna kaupa á
greiðslumarki eins og sýnt var í
fyrstu greininni í þessum greina-
flokki), og eins þegar niðurstöður
rekstrarins eru bornar saman við
upphaflega áætlun. Framlegð nýtist
vel til að mæla arðsemi og breytingar
á arðsemi búgreina. Þar verður þó
að hafa í huga að framlegðina má
auka með því t.d. að fjárfesta í stað
þess að kaupa að þjónustu. Sem
dæmi má nefna kartöfluframleið-
anda sem kaupir að vélar til upp-
skerustarfa. Við það að kaupa vélar
248 FREYR • 7*94