Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1994, Blaðsíða 17

Freyr - 01.08.1994, Blaðsíða 17
Fyrst þarf að styrkja rekstrar- grundvöll ferðaþjónustunnar Paul Richardson, framkvœmdastjóri Ferðaþjónustu bœnda Eftirfarandi erindi flutti Paul Richardson í þœttinum „Um daginn og veginn“ í Ríkisútvarpinu rás 1, hinn 18. júlí sl. og birtist það hér með góðfúslegu leyfi höf- undar. Paul Richardson. Góðir áheyrendur. Eins og margir velti ég helst vöng- um yfir því sem snertir starf mitt á einn eða annan hátt. Eitt af því sem hæst ber í þjóðfélagsumræðunni í dag og snertir starf mitt eru at- vinnumál í dreifbýli. Fyrir sveitarstjómarkosningarnar sl. vor voru tekin sjónvarpsviðtöl við frambjóðendur, hringinn í kring- um landið, og spurt um brýnustu verkefni framundan. Nær undan- tekningarlaust nefndu menn atvinnu- mál en í mörgum tilfellum nefndu þeir sérstaklega þörf fyrir nýsköpun. Þessi þörf er mest áberandi í und- irstöðuatvinnugreinum, hjá fisk- vinnslufólki og bændum, en síður í þjónustugreinum. Margir sveitar- stjórnarmenn nefndu þjónustu við ferðamenn sem atvinnumöguleika án þess þó að ræða útgjöld eða fjár- festingar sem hugsanlega þyrfti að leggja í til þess að auka umsvif. Ég man ekki til þess að neinn hafi nefnt langtímaáætlanir, né samvinnu við önnur sveitarfélög eða minnst á samstarf á landsvísu eða annað sem þyrfti til þess að ný störf yrðu til. Ég þori að fullyrða að engin at- vinnugrein sé í sjónmáli sem getur skapað þau störf sem við þurfum á að halda án verulegrar fjárfestingar og það gildir einu hvort um stóriðju eða þjónustugrein eins og ferða- þjónustu er að ræða. En þessar fjár- festingar þurfa ekki endilega að vera í formi mannvirkja, heldur mega þær gjarnan einnig verið í formi þekkingar og áætlanagerðar. Eitt munu nauðsynlegustu fjárfestingar þó hafa sameiginlega - þær skila ekki arði strax, heldur þarf að líta til langs tíma. Annað sem þarf eru ábyrg og upplýst áhrif stjórnmála- manna. Hvers vegna er ferða- þjónustan ekki lengra á veg komin? Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna ferðaþjónusta á Islandi er ekki lengra á veg komin en raun ber vitni. Hráefnið er fyrir hendi, það er að segja landgæði og menning í víðasta skilningi þess orðs. Sumir segja e.t.v . að staðan í dag sé við- unandi eða að við viljum ekki fleiri ferðamenn. En ég er þeirrar skoð- unar að við eigum markvisst að virkja möguleika ferðaþjónustunar til atvinnusköpunar og að það sé hægt að fjölga ferðamönnum veru- lega án þess að landið bíði tjón af. Það er eins og menn haldi að ferðaþjónusta þurfi enga stefnu, að aukning muni skila sér hvemig sem á málum er haldið og að eftir því sem fleiri ferðamenn koma til landsins muni sjálfkrafa aukast Náttúrufegurð í Mývatnssveit. (Ljósm. P.R.). 15-16*94 - FREYR 521

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.