Freyr - 01.09.1994, Blaðsíða 39
Nýtt fyrirtœki flytur út œöardún
Nýlega hóf fyritækið Atlantic
Trading á íslandi hf. útflutning æð-
ardúns en útflutningurinn er í sam-
vinnu við markaðs- og sölufyrir-
tækið Atlantic Trading S.á r.l. í Lúx-
embúrg.
Fyrirtækin ráðast ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur en sala æð-
ardúns, og þá sér í lagi útflutningur,
hefur átt undir högg að sækja
síðastliðin ár sem kunnugt er.
Heildarútflutningur æðardúns hefur
farið snarlega minnkandi, úr 2,5-3
tonnum þegar best var árin 1987-’90
niður í um 1,6 tonn árin 1991, 1992
og 1993.
Margvíslegar kenningar eru á lofti
um ástæður erfiðleikanna; efnahags-
kreppa heimsins, erfiðari samkeppni
við annan dún og önnur fyllingar-
efni, ónógri áherslu á sölu- og mark-
aðsmál o.fl. Líklegast má álykta að
efnahagsástand heimsins valdi hér
mestu um, svo og samverkun allra
þessara þátta.
Útflutingur æðardúns er vonandi á
batavegi með batnandi efnahag en
víða sjást jákvæð teikn um að svo
sé.
Frá því síðla árs 1993 hafa fyr-
irtækin undirbúið útflutning æðar-
dúns en á söluskrifstofu Atlantic
Trading í Lúxembúrg starfa 2-3
manns við markaðssetningu fs-
lenskra sjávar- og landbúnaðar-
afurða. Markaðsstjóri Atlantic Trad-
ing S. á r.l. er Gígja Birgisdóttir en
hún útskrifaðist frá háskólanum í
San Diego sem rekstrarfræðingur
með markaðsfræði sem aðalfag.
Æðarræktarbændur sem telja sig
geta boðið fyrsta flokks æðardún, og
hafa áhuga á að komast í viðskipti
við þessi fyrirtæki, er bent á að hafa
samband við framkvæmdastjóra
þess hér á landi, Þórð Eyfjörð Hall-
dórsson, á mánudögum á milli kl.
8:00-11:00 í síma 92-12200 og far-
síma 989-60365. Einnig má skrifa til
Atlantic Trading á íslandi hf„ Lang-
holti 23, 230 Keflavík. (Fréttalilkynning)
Fundur um sauðfjárrœkt á Norðurlöndum.
Frh. afhls. 582.
MOlflR
Dýrt hvíldarland
Ein af þeim leiðum sem notaðar
eru til að draga úr búvörufram-
leiðslu er að bændum er fyrirlagt að
nýta ekki hluta af ökrum sínum.
Þetta er m.a. gert í löndum ES. Það
er hins vegar ekki gefið að láta land
standa ónotað, eða hvfla það, eins og
kallað er. Einkum er það dýrt fyrir
danska bændur sem búa við ströng-
ustu reglumar um meðferð slíks
lands.
Það kostar danska bændur að
jafnaði dkr. 1.060 á hektara en
breska og franska bændur dkr. 580 á
ha. Skýringin á þessu er sú að í
Danmörku er algjört bann við því að
sprauta illgresiseyðingarefnum á
þetta land, en í öðrum ES-löndum
eru reglur ekki eins strangar. í
Hollandi, Belgíu, Spáni, Frakklandi
og Italíu eru engar hömlur á þessum
efnum.
Afleiðingin af þessu er sú að
danskir bændur verða að sá grasfræi
í hvíldarlandið og síðan að slá það
allt upp í fjórum sinnum yfir sum-
arið. I Bretlandi t.d. má sprauta og
eftir það nægir einn sláttur.
(Landsbladet)
brött fjöll og hamrar í sjói fram og
sauðfé á beit upp um allar hlíðar.
Smalamennskur eru því erfiðar og
jafnvel áhættusamar. í Mykjunesi
var áður töluverð byggð. Nú sækja
þangað ferðamenn, aðeins 12 manns
eiga þar fasta búsetu og þar eru
1200 fjár. íbúum Færeyja fer fækk-
andi, eru nú um 47.000, og atvinnu-
leysi er um 20%. Mikil áhersla hefur
verið lögð á að bæta samgöngur,
m.a. með því að leggja ágæta vegi
og grafa jarðgöng auk þess að við-
halda samgöngum á sjó. Frá Reykja-
víkurflugvelli er tveggja stunda flug
til Vágaflugvallar en þaðan er
tveggja stunda ferð með bílum og
ferju til Þórshafnar á Straumey. Til
Færeyja er gott að koma.
Um leið og ég slæ botn í þennan
pistil um vel heppnaðan fund um
sauðfjárrækt á Norðurlöndum og
Færeyjaferð, sem var í senn ánægju-
leg og fróðleg, læt ég þess getið að
24. INTERNORDEN fundurinn
verður haldinn í Danmörku sumarið
1996.
Reykofnar
Staðlaðir eða sérsmíðaðir
Vandaðir íslenskir reykofnar fyrir kjöt og fisk,
fáanlegir ýmist staðlaðir eða sérsmíðaðir.
Ofnarnir eru þægilegir í uppsetningu og notkun.
Kennsla og ráðgjöf ef óskað er.
Hentar sérstaklega fyrir:
Bændur - IHÐfitBÐfl- 6
Veiðifélög TRE.fi](tt>]ÓNUSTftN
Fiskvinnslur vlw Þórir örn Garðarsson ‘ Laxak''ísl 3
110 Reykjavík • Sími 91 -673104
Matvælafyrirtæki. g j[ ^ Boðiæki 984 60325
17'94 - FREYR 583