Freyr - 01.09.1994, Side 45
Umrœðufundur um matarœði og heilsufar
Hinn 11. ágúst sl. efndu bænda-
samtökin og Náttúrulækningafélag
íslands til umræðufundar um mat-
aræði og heilsufar á Hótel Sögu í
Reykjavík.
Frumkvöðull að þessum fundi var
Baldvin Jónsson en hann hefur starf-
að um eins árs skeið á vegum
bændasamtakanna að því að kynna
ísland erlendis sem land hreinleika
og að kanna hvað gera þurfi til að
íslensk matvæli fái gæðastimpil sem
lífrænar (organic) vörur á erlendum
markaði.
Sem lið í þessari starfsemi hefur
hann boðið erlendum sérfræðingum
um þessi mál til landsins og efnt til
kynningarfunda með þeim.
Fyrmefndur umræðufundur var
einn af þessum kynningarfundum.
Frummælendur þar voru þessir:
Dr. Patric Quillin. Hann starfar
sem næringarfræðingur hjá banda-
rísku krabbameinsstofnunum (CTOA).
Þær leggja mikla áherslu á holla og
lífræna fæðu í eftirmeðferð krabba-
meinssjúklinga og að meðferðin fari
fram í heilsusamlegu umhverfi.
MOLflR |
Danir selja búvörur
til Austur-Evrópu
Áætlað er að útflutningur Dana á
búvörum til Austur-Evrópu verði á
þessu ári, 1994, að andvirði tveggja
milljarða dkr., og er þá komútflutn-
ingur undanskilinn.
Talið hefur verið að lönd í Austur-
Evrópu yrðu fljót að koma búvömrn
sínum á markaði eftir fall komm-
únismans en í ljós hefur komið að
framleiðslugeta þeirra er mjög tak-
mörkuð þar sem framleiðslutæki
þeirra, svo sem vélar og byggingar,
em úrelt og slitin. Það mun taka
mörg ár aö endumýja þau og á
meðan er sú hætta yfirvofandi að
íbúar þessara landa fari að sjá gamla
kerfið í nýju og bjartara ljósi. Því er
mikilvægt að lönd Vestur-Evrópu
styðji uppbyggingarstarfið í þessum
löndum.
Hann taldi ísland öðrum löndum
fremur geta boðið upp á þá aðstöðu.
Dr. Gordon Reynolds. Hann starf-
ar sem ráðgjafi við meðferðarstofn-
unina La Costa í San Diego í
Califomíu, sem er virt og dýr með-
ferðarstofnun. Auk lífrænnar fram-
leiðslu á mat fjallaði hann um
möguleika á nýtingu hitaveituvatns
og leirs til heilsubóta, en stofnun
hans notar hvort tveggja í starfsemi
sinni.
Dr. Jonelle Reynolds. Hún er sál-
fræðingur og hefur sérhæft sig í því
hvert er hlutverk sjúklingsins sjálfs í
endurhæfingunni og boðar þá kenn-
ingu að máttur hugaraflsins sé mikil
í baráttu við sjúkdóma. Líkami og
sál séu nátengd og vellíðan sé fólgin
í jafnvægi þar á milli.
Dr. Shari Lieberman er næringar-
fræðingur og fjallaði hún um hlut-
verk næringar á meðferð hjarta-
sjúkra, gigtarsjúkra og alnæmissmit-
aðra. Hún telur óæskilegt að grípa til
lyfjameðferðar fyrr en aðrar leiðir
séu fullreyndar, þ.e. breytt og bætt
fæðuval. Hún starfar í New York og
ritar fasta dálka í bandarísk blöð og
tímarit og er tíður gestur í sjónvarps-
þáttum sem fjalla um heilsu og heil-
brigðismál.
Dr. James Logan er læknir. Hann
hefur sérhæft sig í svokölluðum fjar-
skiptalækningum, sem eru í því
fólgnar að senda Iæknisfræðilegar
upplýsingar, svo sem röntgenmynd-
ir, og hjartalínurit og texta, með fjar-
skiptatækni. Þetta sé mjög til hags-
bóta fyrir sjúkrahús í dreifbýli og
taldi hann þetta geta komið að góð-
um notum hér á landi.
Húsfyllir var á umræðufundinum
og gerður góður rómur að máli
framsögumanna. Á eftir fylgdu fjör-
ugar umræður og fyrirspurnir.
DRÁTTARVÉLA- OG VINNUVÉLA-
HJÓLBARÐAR
EIGUM MIKIÐ ÚRVAL HJÓLBARÐA UNDIR
ALLAR GERÐIR ÖKUTÆKJA. HAGSTÆTT
VERÐ
GÚMMÍVINNSLAN HF.
Réttarhvammi 1 - Akureyri - Sími 96-12600
(Landsbladet nr. 30/1994).
17'94 - FREYR 589