Freyr - 15.11.1994, Qupperneq 15
Norðurlöndunum sameiginlega. Það
er mjög mikilsvert fyrir okkur að
taka þátt í þessu verkefni og efla
með því möguleika okkar nemenda
til framhaldsnáms við búnaðarhá-
skóla nágrannalandanna.
Framtíð búvísindanámsins á
Hvanneyri ræðst því öðru fremur af
því hvemig það verður skilgreint.
Þar gildir í raun sama viðhorf og um
starfsmenntunina að þarfimar eru
mun fjölbreyttari unt menntun leið-
beinenda og rannsóknarmanna en
hingað til hefur verið skilgreint í
verkahring deildarinnar. Ef ekki
næst samstaða um víkkun á skil-
greindu hlutverki deildarinnar og
eflingu nýrra viðfangsefna þá mun
hún smám saman verða of ein-
angruð til þess að standast sem
háskólanám fyrir landbúnaðinn.
Á síðasta vetri var unnið nokkuð
að slíku skipulagsstarfi á vegum
Landbúnaðarráðuneytisins. Nái þær
tillögur fram að ganga í einhverri
mynd, má ætla að háskólanám í bú-
fræði á Hvanneyri geti átt farsæla
framtíð. Það er því mikilvægt að á
það reyni hvort almennur vilji er
fyrir hugmyndum Landbúnaðarráðu-
neytisins um framgang endurskipu-
lagningar á hlutverki háskólanáms í
búfræði hér á landi.
Lokaorð.
Hér að framan hef ég vikið
nokkuð að þeim þáttum sem ég tel
að eigi að móta skipulag á landbún-
aðarmenntun framtíðarinnar. Fram-
tíð landbúnaðar á íslandi er um
margt óráðin. Margt í ytri aðstæðum
er mjög að breytast. Samkeppnis-
staða innlendrar landbúnaðarfram-
leiðslu mun mjög ráðast af fæmi og
hugvitsemi bændanna sjálfra og
mun menntun þeirra verða eitt
grundvallaratriða. Búnaðarskólarnir
munu gegna mikilvægu hlutverki
sem starfsmenntaskólar landbúnað-
arins. Hversu mikilvægt það hlut-
verk verður, ræðst af skilgreiningu
verkefna þeirra og því fjármagni
sem þeim verður úthlutað.
Fró aðalfundi
Landssambands kúa-
bœnda.
Frh. afbls. 845.
að ef til sameiningar Búnaðarfélags
Islands og Stéttarsambands bænda
kemur muni það leiða til róttækrar
uppstokkunar á félagskerfi landbún-
aðarins og ábyrgð einstakra samtaka
innan þess.
Fundurinn telur framtíðarþátttöku
LK í væntanlegum samtökum ráðast
af því að gert verði skýrt samkomu-
lag um verkaskiptingu, þar sem LK
verði kallað til aukinnar ábyrgðar og
forræðis í málefnum greinarinnar.
Felur fundurinn stjóm LK að vinna
ákveðið að slíku samkomulagi.
Ályktun um öflun upplýsinga
um útskolunartíma
fúkkalyfja
Aðalfundur LK 1994 felur stjóm
landssambandsins að gangast fyrir
öflun upplýsinga um útskolunartíma
hinna ýmsu fúkkalyfja, sem notuð
eru í mjólkurkýr og námkvæmari
merkingu þeirra en nú er, svo að
ekki verði um villst hvenær nýta má
mjólk eftir lyfjanotkun.
Greinargerð:
Orðalag á umbúðum fúkkalyfja
um það hvenær nýta megi mjólk að
nýju eftir lyfjameðferð, er mjög
breytileg eftir tegundum og í sumum
tilfellum þannig að vafi getur leikið
á því hvort nýta megi mjólkina 12
klst. fyrr eða síðar. Dýralæknar og
aðrir ábyrgir aðilar ráðleggja þá ætíð
að henda mjólkinni einu máli
lengur, ef vafi leikur á hvernig skilja
beri leiðbeiningarnar. Gildir þetta
jafnt um mjólk úr spenum sem með-
höndlaðir hafa verið og úr öðrum
spenum kýrinnar.
Ljóst er að þama geta legið verð-
mæti sem skipta milljónum króna
árlega fyrir bændur og óþolandi að
orðalag leiðbeininga sé ekki ótví-
rætt.
Tillaga um útgáfu
Nautgriparœktarinnar
Aðalfundur LK 1994 fer þess á
leit við Búnaðarfélag íslands að
útgáfa Nautgriparæktarinnar verði
efld og að ritið komi út þrisvar sinn-
um á ári. Jafnframt verði leitað til
samstarfsaðila í Fagráði varðandi
efnisöflun í ritið.
Óánœgja með lyfsölulög
Aðalfundur LK 1994 vekur
athygli Landbúnaðarráðherra og
Þróun háskólanáms í búfræði hér-
lendis er einnig þýðingarmikið verk-
efni ef gert er ráð fyrir að landbún-
aðurinn haldi velli í atvinnulífi land-
anna. Nýsköpun og þróunarstarf er
órjúfanlegur þáttur framþróunarinn-
ar í hvaða atvinnuvegi sem er og þar
gegnir menntunin lykilhlutverki. Sú
skipan að tengja háskólanámið svo
náið starfsmenntuninni sem raunin
er í dag tel ég vera til framdráttar
háskólanáminu og ber að halda
þeirri skipan óbreyttri. Það er þó
mikilvægt að námsframboðið sé
ekki of þröngt skilgreint þannig að
það verði um of mótað af dægur-
málum í atvinnugreininni á hverjum
tíma. Það er einnig mikilvægt að
gera sér fulla grein fyrir þeim tak-
mörkunum sem aðstæðurnar bjóða
og leggja áherslu á að styrkja grunn-
menntunina á háskólastigi svo sem
kostur er og þannig auðvelda að-
gang að hvers konar framhalds-
menntun.
landbúnaðarnefndar Alþingis á því,
að breytingar á lyfsölulögum frá maí
1994 hafa í för með sér bæði óhag-
ræði og verulegan kostnaðarauka
fyrir bændur. Því skorar fundurinn á
Landbúnaðarráðherra og landbúnað-
amefnd að beita sér fyrir breyt-
ingum á téðum lögum á þann veg að
dýralæknar hafi ótvírætt leyfi til
sölu dýralyfja.
Dýralœknir
nautgripasjúkdóma
Aðalfundur LK 1994 felur stjóm
landssambandsins að vinna að ráðn-
ingu dýralæknis í nautgripasjúk-
dómum. Þessi staða ætti að nýtast til
fræðslu og rannsóknarstarfa og til að
koma á sjúkdómaskráningu og öðru
því tengdu.
Fleiri mál komu til umræðu og
afgreiðslu á aðalfundinum, má þar
nefna tillögu um útgáfu fjósmöppu
sem stefnt er að dreifa til allra
mjólkurframleiðenda í landinu og
ætluð öllum þeim sem koma að
störfum í fjósi. Hefði fjósmappan að
geyma ýmsar hagnýtar upplýsingar
um mjaltir, skjúkdóma, verkun lyfja,
fóðrun ungkálfa og fleira.
22*94 - FREYR 831