Freyr - 15.11.1994, Page 45
Tíðindi af tölvumálum
Jón Baldur Lorange, forstöðumann tölvudeildar BÍ
Alhliða jarðrœktarforrit
Samráðsnefnd um forritun í
jarðrækt og jarðræktarleiðbein-
ingum telur brýnt að hafin verði
vinna við gerð alhliða jarðræktar-
forrits fyrir búnaðarsambönd til
leiðbeininga fyrir bændur.
Þetta kom fram á fyrsta fundi
nefndarinnar, sem haldinn var þann
22. nóvember sl. í Bændahöllinni.
Samráðsnefndin var skipuð af bún-
aðarmálastjóra til að vera Búnað-
arfélaginu til ráðgjafar um forritun í
jarðrækt. Formaður nefndarinnar er
Jón Baldur Lorange, forstöðumaður
tölvudeildar og aðrir nefndarmenn
eru Hjörleifur Ólafsson, bóndi á
Fossi í Hrunamannahreppi, Guð-
mundur Helgi Gunnarsson, ráðu-
nautur í Ræktunarfélagi Norður-
lands, Kristján Bj. Jónsson, ráðu-
nautur í Bsb. Suðurlands, Ámi Snæ-
björnsson, landsráðunautur og Óttar
Geirsson, landsráðunautur.
Samráðsnefndin leggur til að for-
ritið verði jafnframt notað til að
byggja upp heildstætt gagnasafn í
jarðrækt, sem innihéldi upplýsingar
um tún, áburðargjöf, uppskeru og
margþættar upplýsingar um jarð-
rækt. Næsti fundur nefndarinnar
verður haldinn 24. janúar 1995.
Skýrsluhaldinu í
hrossarœkt hrósað
I Morgunblaðinu 12. október sl. er
Búnaðarfélaginu hrósað fyrir að
hafa lyft grettistaki í endurskipu-
lagninu skýrsluhalds hrossaræktar-
innar. Þar segir orðrétt: „... hverjum
þeim sem fylgst hefur með endur-
skipulagningu skýrsluhalds hrossa-
ræktarinnar hjá B.I. síðustu árin
dylst ekki að þar hefur verið lyft
grettistaki. Að síðustu er rétt að
þakka þá góðu þjónustu sem
greinarhöfundur hefur þegið vegna
starfsins hjá starfsmönnum stofn-
unarinnar.“ Greinarhöfundur er
Jón Baldur Lorange.
Valdimar Kristinsson, en hann skrif-
ar reglulega um hrossarækt í Morg-
unblaðið.
Það er ánægjulegt að það mikla
starf, sem BÍ hefur lagt í síðustu ár í
uppbyggingu í skýrsluhaldinu í
hrossarækt, hefur skilað sér til
hrossaræktenda um allt land. Það
starf sem snúið hefur að tölvu-
deildinni hefur falist í því að end-
Mjólkurhormón
spurning um tíma
Mjólkurhormónið BST hefur eng-
in neikvæð áhrif á kýr né samsetn-
ingu mjólkur. Það uppfyllir allar
þýskar kröfur um ný lyf. Það verður
ekki stöðvað, aðeins hægt á að það
komi. Það sagði, að því er sænska
tímaritið ATL hermir, þýski prófess-
orinn Jöm Harmann á ráðstefnu þar
sem fjallað var um mjólkurfram-
leiðslu í framtíðinni.
urskipuleggja skýrsluhaldið undir
faglegri stjórn Kristins Hugasonar
hrossaræktarráðunautar, gerð gagna-
vörslukerfisins Fengs, gífurlegri
aukningu á vinnu í tölvudeild
félagsins við skráningu og frágangs
skýrsluhaldsgagna frá þúsundum
hrossaræktenda og nú síðast gerð
forritsins Einkafengs fyrir einmenn-
ingstölvur, sem opnar hrossarækt-
endum aðgang að hinu geysistóra
gagnasafni um hrossarækt.
Ennfremur hefur Kristinn Huga-
son beitt sér fyrir stórátaki í söfnun
upplýsinga um kynbótadóma frá
fyrri tíð, sem skráðir hafa verið í
tölvudeild. Þessir dómar hafa skipt
þúsundum. Þá ber þess og að geta að
einn af hörðustu gagnrýnendum
landbúnaðarkerfisins um langt
skeið, Jónas Kristjánsson, ritstjóri
DV og áhugamaður um hrossarækt,
ber lof á Búnaðarfélagið fyrir
„merkt starf' að tölvuskráningu á
upplýsingum um eldri hross, og
kynbótadóma þeirra, í formála
síðustu tvegjya bóka sinna um ættir
hrossa. Það skal engan undra þó
sumir þurfi að lesa síðustu máls-
grein aftur til staðfestingar!
Harmann taldi að BST geti aukið
mjólkurframleiðslu um 10 til 15 af
hundraði. Aðspurður um hvort það
væri siðfræðilega rétt, svaraði hann
að svo væri í höndum góðra bú-
manna sem gættu settra reglna um
notkun þess. Yfirleitt mætti þó ekki
nota hormónið þvf þá leiddi það til
svo hárrrar frumutölu að framleiðsla
slíkrar mjólkur yrði stöðvuð. Þess
vegna yrði það ekki almennt notað.
MOLHR