Freyr - 01.08.1998, Side 13
Skýrsluhald er
lykilatriði
Vidtal við Elínu Láru Sigurðardóttur,
svínabónda á Bjarnastöðum í Grímsnesi
ABjamastöðum í Grímsnesi rek-
ur Elín Lára Sigurðardóttir
svínabú af miklum myndarskap
ásamt manni sínum, Sigurði Gunn-
arssyni, en sérsvið hans eru hrossin
á bænum.
Þau hafa búið á Bjamastöðum
síðan 1975, fyrst með kýr og sauðfé
en árið 1981 komu fyrstu tvær gylt-
umar að Bjamastöðum, svo komu
fljótlega tvær til viðbótar og þá var
ekki aftur snúið og kýmar og kind-
urnar viku fyrir svínunum.
Blaðamaður Freys tók hús á
henni til þess að fræðast um svína-
ræktina og þegar farið var að skoða
húsin var blaðamanni afhentur tand-
urhreinn galli, skór og hárhlíf. Þama
er greinilega ekkert gefið eftir í
hreinlæti og sóttvömum.
Lára, eins og hún er yfirleitt köll-
uð, er fædd og uppalin í Reykjavík
en segist vera sveitamaður og
Grímsnesingur því að hún var ekki
nema 13 ára þegar hún kom þangað
fyrst. Hún er í stjórn Svínaræktarfé-
lags og hefur setið þar síðan 1991 en
áður var hún í varastjórn frá 1986.
Hvernig hófst svínaræktin á
Bjarnastöðum?
Fyrst komu tvær gyltur svo aðrar
Freyr 10/98 - 13