Freyr - 15.10.1998, Blaðsíða 12
bændur færðu pörunartímann enn
meira fram og fóru að að para mink-
inn strax upp úr mánaðamótunum
febrúar/mars, með góðum árangri.
Pörunartími minka á
ísienskum minkabúum
I skýrsluhaldi Bændasamtaka Is-
lands sem nær yfir sl. 10 ár og inni-
heldur upplýsingar um 380.000 læð-
ur, sést að flestir bændur byrja pörun
á minkum 5.-8. mars. Mun færri
byrja dagana 1.-4. mars og tiltölu-
lega fáir eftir 9. mars og næstum
enginn byrjar fyrir mánaðamótin
febrúar/mars. Kynnt var úr skýrslu-
haldi loðdýrabænda á ráðunauta-
þingi BÍ og Rala 1997 (S.B. 1997)
og kom þar fram að frjósemi ís-
lenskra minka er mest ef pörun hefst
strax um mánaðamótin febrúar/mars
og fer eftir það hratt minnkandi. I
sömu átt bendir kandidatsverkefni
Einars E. Einarssonar (E.E.E.1997)
við Búvísindadeildina á Hvanneyri,
sem unnið var á 7 loðdýrabúum í
Skagafirði. Þar kom í ljós að geld-
prósenta dýranna jókst og einparað-
ar læður urðu fleiri eftir því sem
seinna var byrjað að para eftir 28.
febrúar á hlaupári.
Hjá dönskum og sænskum
minkabúum er þessu öfugt farið, þar
er talið að ekki eigi að para minkana
fyrir 8.-10. mars (Allan Olaufsson
1979).
Mynd 1 sýnir línurit yfir frjósemi
(hvolpafjölda á paraða læðu) hjá ís-
lenskum svartminkalæðum sl. 10 ár.
Af línuritinu má sjá að frjósemi dýr-
anna minnkar um 0,6 hvolp/læðu á
fyrstu 10 dögunum eftir 1. mars.
Þegar um villiminkalæður er að
ræða minnkar frjósemi þeirra um
heilan hvolp á sömu dögum ( S.
Bláfeld 1997).
Birtuskilyrði hér á landi
Hér á norðurhveli jarðar er almennt
talið að um leið og daginn tekur að
lengja, eftir vetrarsólstöður, fari
minkurinn að undirbúa sig fyrir pör-
unartímann. Aðrir telja að undirbún-
ingur þeirra byrji miklu fyrr (Steen
Möller 1996), jafnvel strax við sól-
stöður eða um 21. júní. Allir fræði-
menn, bæði lærðir og leikir, eru þó
sammála um að lífsstarfsemi minks-
ins hvað varðar feldskipti, pörun og
got er tengt breytilegri daglengd í
yfir árið. Þannig hafa margar til-
raunir sýnt að með því að breyta
birtutími í minkahúsunum má hafa
veruleg áhrif á feldskipti og pörun-
arvilja dýranna. Samt sem áður hef-
ur ekki tekist að finna nákvæm áhrif
daglengdar á þessi atriði (S.M.
1996), en hún virðist skipta höfuð-
máli. Margoft hefur komið fyrir að
við það eitt að breyta venjulegri
daglengd í minkahúsunum, hafa
skapast alvarleg vandamál á pörun-
artímanum.
Við það eitt að nota ljós við fóðr-
un á kvöldin, eða lýst er upp næsta
umhverfi húsanna, eru þess mörg
dæmi að pörum dýranna hefur farið
út um þúfur. Þannig kemur oftar fyr-
ir í dimmum húsum að pörunartími
minksins færist fram eða aftur og
pörunarviljinn verður lítill á venju-
legum tíma (Bowness, 1957).
Efni og aðstæður
Tilraunin var gerð á loðdýrabúi
Bændaskólans á Hvanneyri og hófst
fyrsta tímabil hennar 16. febrúar
1997 og eru hér birtar tveggja ára
niðurstöður hennar. Áætlað er að
tilraunin standi yfir fimm pörunar-
og gottímabil til að fá örugga vitn-
eskju um gangmáls- og frjósemis-
kúrfu íslenskra aliminka, miðað við
pörunardaga og dagsbirtu. Birtu-
mælingar Veðurstofu Islands verða
notaðar til að ákveða birtulengd og
birtumagn mánuðina fyrir og yfir
pörun. Á þann hátt á að kanna hvort
samband er á milli mældrar dags-
birtu og bestu pörunardaganna, að
tilrauninni lokinni. Komi fram
fylgni þar á milli má í framtíðinni
nota birtumælingar Veðurstofunnar
til að benda minkabændum á þá
daga sem dýrin eru frjósömust og
viljugust til pörunar.
I tilraunina voru notaðar 110
minkalæður og högnar frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri sem eru úr
og út af innfluttum dýrum frá Dan-
mörku vorið 1995. Var helmingur
þeirra svartur (scanblack) og hinn
helmingurinn brúnn (scanbrown).
Læðunum var skipt upp í 5 hópa
með 22 læður í hvorum hópi og var
aldur og litur dýranna hafður jafn í
öllum flokkunum.
Á tilraunatímanum voru læðum-
ar paraðar og látnar gjóta í svoköll-
uðum „dönskum" gotkössum.
Til að finna bestu pörunardagana
og hvenær dýrin eru frjósömust
hófst pömn hópanna með 5 daga
millibili, eins og sést hér að neðan:
I. hópur hóf pörun
II. hópurhófpömn
III. hópur hóf pömn
IV. hópur hóf pörun
V. hópur hóf pömn
16. febrúar
21. febrúar
26. febrúar
3. mars
8. mars
12-Freyr 13/98