Freyr - 15.10.1998, Side 26
Tafla 3. Fervikagreining á söluverdmæti skinna þar sem lífdýradómar eru
með í líkaninu sem skýribreytur.
Gefin er upp ’marktckt á F stuðli fyrir viðkomandi þátt auk nskýristuðuls í % (R2) og aðhvarfsstuðuls (b) þar sem
það á við. Högnar Læður Öll dýr
Þáttur F R2% b F R2% b F R2% b
Ár *** 15,80 *** 11,14 *** 8,50
Kyn *** 18,70
Þel * 0,60 -3,79 EM 0,05 0,99 EM 0,00 -0,83
Vindhár EM 0,00 -0,53 EM 0,37 -2,58 EM 0,10 -1,57
Stærð *** 7,70 14,98 *** 2,16 6,91 *** 3,95 11,49
Litur EM 0,00 -0,56 EM 0,01 0,47 EM 0,00 0,44
’Marktektin miðar við p<0.001 ***; p<0.01 **; p<0.05 *; EM (Ekki marktækt)
"Skýristuðullinn er reiknaður sem ferningstölusumma viðkomandi þáttar þegar búið er að taka tillit til allra annarra
þátta í líkaninu sem % af heildarferningstölusummu.
Táfla 4. Fervikagreining á söluverðmæti skinna þar sem skinnadómar eru
með í líkaninu sem skýribreytur.
Gefin er upp 'marktekt á F stuðli fyrir viðkomandi þátt auk "skýristuðuls í % (R:) og aðhvarfsstuðuls (b) þar sem
það á við. Högnar Læður Öll dýr
Þáttur F R2% b F R2% b F R2% b
Ár *** 22,80 *** 11,90 *** 11,52
Kyn EM 0,10
Skinngæði *** 17,80 6,10 *** 20,40 5,78 *** 14,56 5,97
Skinnst. *** 15,00 20,56 *** 11,20 18,71 *** 9,47 19,12
Skinnalitur EM 0,10 1,26 EM 0,50 3,12 * 0,16 2,15
'Marktektin miðar við p<0.001 ***; p<0.01 **; p<0.05 *; EM (Ekki marktækt).
"Skýristuðullinn er reiknaður sem ferningstölusumma viðkomandi þáttar þegar búið er að taka tillit til allra annarra
þátta í líkaninu sem % af heildarfemingstölusummu.
tæk áhrif á söluverðið þó að þau séu
ekki eins mikil og áhrifin voru þegar
reiknað var út frá lífdýradómnum.
Stærð skinnanna og gæðaflokkun
hefur í öllum tilfellum marktæk
áhrif. I krónum talið hefur stærðin
töluvert meira vægi, þ.e.a.s. miklu
meira fæst upp út því ef skinnið
lendir einum stærðarflokk ofar en
einum gæðaflokki. Sem dæmi mætti
nefna högnaskinn, en ef það færi
upp um einn stærðarfokk myndi það
hækka um tæplega 21 dkr. (ca. 210
kr.ísl.) í verði. Ef sama skinn myndi
ekki hækka um einn stærðarflokk
heldur einn gæðaflokk myndi það
hækka um rúmar 6 dkr. (ca. 60 kr.
ísl.) í verði.
Líkanið sem notað var á skinna-
dómana skýrði 52% af breytileikan-
um í söluverði högna en 60% í verði
læðna. A mynd 1. má sjá hvemig
i leiðrétt meðaltöl skinnaverðsins,
(least squares means), líta út milli
ára, en um töluverðar sveiflur er
greinilega að ræða sem skýrast af
markaðnum.
2. Umræður og ályktanir
Við val lífdýra að haustinu standa
bændur frammi l'yrir spumingunni
um hvaða vægi þeir eigi að setja á
hvem eiginleika. Við spumingunni
er í raun ekki til neitt einhlítt svar en
niðurstöðumar hér að ofan gefa þó
sterkar vísbendingar um hvar áherslu-
atriðin ættu að liggja í ræktun á
svartmink (Scanblack).
Allir hugsa í peningum og þegar
upp er staðið em það tekjumar af af-
urðinni sem skipta mestu máli. Sam-
band lífdýradóma og skinnadóma,
sem skoðað hefur verið hér, sýndi
svo að ekki verður um villst að það
er stærð dýranna sem skilar mestum
tekjum en eins og tafla 3 og 4 sýna
þá er breyting milli stærðarflokka
alltaf meira virði í krónum talið en
breyting milli gæðaflokka. Gæðin
hafa þó einnig áhrif á verðmætin,
sérstaklega ef þau em skoðuð út frá
skinnadómnum, en séu þel og vind-
hár skoðuð út frá lífdýradómnum
26 - Freyr 1 3/98