Freyr - 15.10.1998, Page 38
Refavanki (nosematosis). Þrír jafhgamlir hvolpar. Sá í miðjunni er sýktur og
hefur ekki þriflst eðlilega. Refavanki er sá sjúkdómur sem við óttumst hvað mest
að fá með innfluttum dýrum.
Eyrnamaur í ref Otodectes cynotis. Barst að öllum líkindum til landsins með
innfluttum silfurref 1983. Finnst einnig í villtum ref á vissum landsvœðum.
ungs. Þetta er sá sjúkdómur sem er
hvað mest hæta á að fá inn á alirefa-
bú með innfluttum dýrum. Sjúk-
dómurinn kemur niður á frjósemi og
þrifum hvolpa. Sjúkdómurinn smit-
ast á fósturskeiði og er ólæknandi.
Fullorðin dýr sýna aldrei nein sjúk-
dómseinkenni. Ekkert bóluefni er til
til vamar. Refavanki hefur einu sinni
greinst í aliref hér á landi. Líkur
benda til að hann hafi annað hvort
borist inn á búið með rottum eða
villtum íslenskum ref en sjúkdómur-
inn finnst í villta refastofninum.
Brugðist var við með niðurskurði.
Gerð er sú krafa að öll innflutt dýr
séu blóðprófuð fyrir þessum sjúk-
dómi fyrir flutning til landsins.
Kláðamaur er mikill skaðvaldur.
Hann berst erlendis með villtum ref-
um og er víða landlægur. Hann hef-
ur ekki fundist hér og verður að
kappkosta að svo verði áfram.
Eyrnamaur finnst líklega á flestum
refabúum á Norðurlöndum. Hann
barst hingað til lands með innflutt-
um silfurrefum árið 1983. Finnst
einnig í villta refastofninum á viss-
um landsvæðum. Hefur smátt og
smátt dreifst á alirefabú um allt
land.
Hringskyrfi er sjúkdómur af völd-
um sveppa sem kemur upp öðru
hvoru í refum erlendis og eru kettir
þá algengasti smitberinn. Sveppur-
inn leggst einnig á önnur húsdýr.
Sveppasýkingar af svipuðum toga
hafa komið upp öðru hvoru hér á
landi í kúm og hrossum og hefur
borist frá þeim í menn.
Mirtkar
Plasmacytosis er veirusjúkdómur
sem olli miklum usla í minkarækt
hér á landi í byrjun og náði nær að
ganga af henni dauðri. Brugðist var
við með niðurskurði og stofnskipt-
um. Við innflutning á minkum er
gætt sérstakrar varúðar til þess að
hindra að þessi sjúkdómur berist á
ný í alimink hér á landi.
Veiruskita finnst á öllum Norður-
löndum og er nánast landlæg í Dan-
mörku. Brugðist er við henni með
bólusetningu og hafa á síðari árum
verið vandfundin bú sem ekki bólu-
setja gegn þessum sjúkdómi eins og
við gerum kröfu til við kaup á kyn-
bótadýrum til innflutnings. Hefur
þetta sett okkur nokkar skorður und-
anfarin ár við kaup á minkum frá
Danmörku.
Hvolpaveiki leggst á mink með
svipuðum hætti og á ref.
Smithætta frá hundum,
köttum og villtum
dýrum
Hundar geta borið nær alla þá sjúk-
dóma og sníkjudýr, sem hrjáð geta
refi, t.d. alvarlegar veirusýkingar
eins og hvolpaveiki og smitandi
heilahimnubólgu. Svipuðu máli
gegnir um ketti. A sóttkvíarbúum er
algjört bann við hunda- og katta-
haldi. Sömuleiðis er starfsmönnum
þessara búa óheimilt að halda hunda
og ketti sem heimilisdýr.
38 - Freyr 1 3/98