Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.2000, Qupperneq 19

Freyr - 01.01.2000, Qupperneq 19
HVE-naer Riða í sauðfé, kúariða og Creutzfeldt-Jakob sjúkdómur í fólki (Transmissible spongiform Encephalopathies - TSE) Inngangur Sjúkdómar þeir, sem nefndir eru hér að ofan, tilheyra TSE-flokki sjúkdóma, þ.e. smitandi (Trans- missible) sjúkdómum sem valda svampkenndum (Spongiform) skemmdum í heila (Encephalopath- ies) manna og ýmissa dýra. Sjúkdómaflokkur þessi hefur einnig verið kallaður príon-sjúk- dómar. Orsök þeirra er smitefni sem nefnt hefur verið „prion“ eða „prion-prótein“, skammstafað PrP. Eðlilegt prion-prótein finnst í lík- ama manna og margra dýra, skammstafað PrPc. Smitefnið er af- lagað eða gallað prion-prótein, skammstafað PrPsc (c=cell, fruma; sc=scrapie, riða). Prion-prótein er eitt af hinum eðlilegu próteinum líkamans. Þau hafa þýðingu við stjóm á dægur- sveiflu að talið er, annars er lítið um hlutverk þeirra vitað ennþá. Komið hefur í ljós að mýs með óvirkt prionprótein (erfðabreyttar mýs) eiga a.m.k. stundum við svefntruflanir að etja. Eðlileg prion-prótein taka, eins og vera ber, þátt í efnaskiptum líkamans. Aflöguð eða skemmd prionprótein finnast í líkama allra dýra og manna með TSE-sjúkdóma. Hægt er að sjá þau í vefjasneiðum með því að beita sérstakri mótefnalitun. Þau brotna ekki niður eða leysast upp á eðlilegan hátt af efnum sem kljúfa prótein heldur safnast fyrir í heilavefnum og valda skemmdum, einkum í mænukólfi og litla heila. Hin gölluðu eða aflöguðu prion- prótein eru mjög þolin gagnvart jónandi geislun, útfjólubláu ljósi, formalíni og flestum þekktum eftir Sigurð Sigurðarson, dýralækni á Keldum dauðhreinsunaraðferðum. Talið er að smitefnið PrPsc, sem komið er inn í líkam- ann, fjölgi sér með því að hafa áhrif á og breyta eða laga eftir sinni eigin mynd eðlileg prion-prótein, sem þau mæta. Þetta gerist hægt og bítandi, fyrst líklega í blóði, en safnast saman í eitlavef, m.a. í hálskirtlum og kok- eitlum, gamaslímhúð, gamaeitlum, milti og berast svo til miðtauga- kerfis að lokum. Þá fer eftir nokk- um tíma að bera á sérstökum ein- kennum riðu vegna skemmdanna, sem verða á heilavefnum Ekki er enn vitað hvaða kraftar það em sem breyta hinu eðlilega proteini, PrPc, í smitefnið PrPsc. Sjúkdómar í TSE flokki Sjúkdómar í TSE-flokki eða riðu- flokki leggjast á taugakerfið og leiða ávallt til dauða. Þeir eru þessir: ífólki: 1. Kum (laughing death). Fyrst lýst 1957 2. Creutzfeldt-Jakob veiki í öldmðu fólki (CJD). Fyrst lýst 1920-1921 3. Nýtt afbrigði af CJD. Fyrst lýst 1995, sjá síðar (nvCJD) 4. Fatal familial insomnia. Ban- vænt ættlægt svefnleysi. Fyrst lýst 1986 5. Gerstamann-Straussler-Scheink- er veiki (GSS). Fyrst lýst 1928 og 1936 I dýrum: 6. Riða í sauðfé og geitum (Scrapie). Fannst fyrst í Bret- landi og lýst 1732 7. Riða í minkum (TME, Trans- missible Mink Encephalopathy). Fyrst lýst 1947 8. Riða í vissum hjartardýrum (CWD, Chronic Wasting Disease). Fyrst lýst 1960 9. Kúariða (BSE) var staðfest í Bretlandi 1986. Síðan hafa TSE- sjúkdómar fundist í: 10. -múflónfé (villifé) II ,-í nokkmm tegundum jórturdýra í dýragörðum (sýkt kjöt og beinamjöl unnið úr nautgripum) 12, -í heimilisköttum (FSE) sem hafa e.t.v. sýkst af tilbúnu gælu- dýrafóðri og 13. -í villtum kattardýrum í dýra- görðum (BSE-smitaður tauga- og heilavefur í fóðri) Auk þessa náttúrlega smits hefur- fjöldi dýrategunda verið sýktur í tilraunum. Þær dýrategundir sem fá TSE- sjúkdóma og eru nýttar til manneld- is em: Kindur og geitur (riða), nautgrip- ir (BSE) og hjartardýr (CWD). Riðu í hjartardýrum hefur ein- göngu verið lýst í Bandarikjunum en riðu í minkum (TME) hefur ver- ið lýst í Finnlandi og Þýskalandi auk Bandaríkjanna. Menn óttast nú að sauðfé og geitur í Bretlandi gætu hafa smitast af BSE-menguðu kjöt- og beinamjöli eins og kýmar og að afurðir þeirra séu þá orðnar hættu- FREYR 1/2000 - 15

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.