Freyr - 01.01.2000, Blaðsíða 27
nP
£
£
3
X
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
86,7
Búfjáráburð Grasfræ Gamalt hey og Lúpínu Að stinga Friðun lands Annað
moð niður/slétta úr fyrir bútjárbeit
rofabörðum
2. mynd. Ef þú hefur notað aðrar landgrœðsluaðferðir en tilbúinn áburð á svœðið sem þú notar fyrir BGL, hvaða
landgrœðsluaðferðir hefur þú notað? He'r áttu svarendur að merkja við alla þá þcetti sem áttu við.
70% töldu jarðvegseyðingu vera
stórt vandamál á Islandi. Þetta við-
horf birtist einnig í þeim mikla
áhuga sem BGL-bændur hafa á
uppgræðslu. Um 90% þátttakenda í
könnuninni stunduðu uppgræðslu á
jörð sinni áður en þeir byrjuðu í
BGL. Helstu uppgræðsluaðferðir,
sem þessir bændur hafa notað, eru
að bera gamalt hey og moð í rofsár
(90%) og dreifa búfjáráburði á lítið
eða ógróið land (82%) en um 40%
hafa einnig notað tilbúinn áburð til
uppgræðslu. I dag nota um 70%
þátttakenda aðrar landgræðsluað-
ferðir, til viðbótar tilbúnum áburði,
á BGL-svæði sín og leggja þar með
töluvert fram á móti framlagi
Landgræðslu ríkisins (2. mynd).
Þegar spurt var hvort viðkomandi
myndi stunda uppgræðslustörf án
stuðnings BGL-verkefnisins þá
svöruðu yfir 90% því játandi, en
þar af 67% að það yrði í minna
mæli. Þetta sýnir einnig að aðstoð
við uppgræðslu með BGL-verkefn-
inu hefur mikla þýðingu fyrir
bændur.
Spurt var hvort þátttakendur
myndu auka uppgræðslustarfið hjá
sér ef þeir fengju meiri áburð í
verkefnið. Um 75% svöruðu því
játandi. Þannig virðast takmörk-
uð fjárveiting Landgræðslunnar
og eigin fjárráð vera sá þáttur
sem helst kemur í veg fyrir enn
meiri uppgræðslu á vegum
bænda.
Árangur uppgræóslu-
starfsins og reynsla
Við mat á árangri uppgræðslu-
starfsins telur 31% þátt-
takenda að árangur hjá
sér sé mjög góður, 43%
að hann sé frekar góður,
23% telja hann vera í
meðallagi og 3% meta
árangur uppgræðslu-
starfsins sem slakan.
Þeir sem töldu sig hafa
náð góðum árangri voru
spurðir hverju þeir
þökkuðu hann. Mjög
margir tengja árangur
uppgræðslunnar beint
við hóflega beit og við
réttar uppgræðsluað-
ferðir (3. mynd).
Þeir sem svöruðu því
að árangurinn væri ekki
3. mynd. Hverju þakkar þú góðan árangur? Hér áttu svarendur að merkja við alla þá þœtti
sem áttu við.
FREYR 1/2000-23